157. löggjafarþing — 14. fundur,  8. okt. 2025.

Störf þingsins.

[15:34]
Horfa

Jens Garðar Helgason (S):

Virðulegur forseti. Ríkisstjórnin hefur ekki setið auðum höndum nú á haustdögum. Nú er hún komin í stríð við íslenska bændur þrátt fyrir að hæstv. ráðherra hafi farið í hringferð með íslenskum bændum að hitta bændaforystuna, hitta bændur. Þrátt fyrir hástemmd loforð um mikið samráð er komið fram, öllum að óvörum, meira að segja stjórnarliðum, frumvarp sem mun kollvarpa íslenskum landbúnaði. Þrátt fyrir hávær mótmæli íslenskra bænda segir ráðherra að bændur séu bara ekkert óánægðir með þetta frumvarp. En það eru ekki bara bændur sem eru undir þessa dagana. Ferðaþjónustan fær sinn skammt eins og framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar segir m.a. á fésbókarsíðu sinni nú í dag, með leyfi forseta:

„Þetta er algerlega galið rugl. Bæði kílómetragjald og hækkun á vörugjöldum hafa í för með sér milljarða kostnað fyrir bílaleigur. Það er því algerlega ljóst að margra milljarða hækkun á sköttum mun knýja fram verulega verðhækkun á bílaleigubílnum fyrir ferðamenn. Það á nú að gerast á sama tíma og flugfélag er nýhætt starfsemi, raungengið er gríðarsterkt, óvissa í alþjóðaviðskiptum hefur ekki verið meiri í tugi ára og Ísland hefur verið að tapa samkeppnisstöðu sem áfangastaður ferðamanna síðastliðin þrjú ár, meðal annars með þeim afleiðingum að árstíðasveiflan er að aukast aftur. Við þetta bætast aðrar gjaldahækkanir sem hafa bein áhrif á ferðaþjónustuvörur, t.d. 3,7% hækkun á áfengisgjaldi […] Allt fer þetta svo beint inn í vísitölu neysluverðs og vinnur beint gegn markmiðum um lægri verðbólgu. Og ofan á allt saman á svo að leggja nýjan ferðamannaskatt!“

Við má bæta hruni í komu skemmtiferðaskipa út af ofurskattlagningu á skemmtiferðaskipin.

Virðulegur forseti. Ef þetta er hin nýja atvinnustefna ríkisstjórnarinnar þá held ég að það sé betur heima setið en af stað farið.