Opinber fjárframlög til stjórnmálaflokka.
Forseti. Ég vil þakka hv. þm. Diljá Mist Einarsdóttur fyrir að vekja máls á þessu máli. Það mátti á henni skilja í inngangsorðum að heldur gengi henni illa að sannfæra eigin flokksmenn um allar þær góðu hugmyndir sem hún kemur með. Það er mér alveg sérstök ánægja að heyra hversu ánægð hún er með frammistöðu þessarar ríkisstjórnar og get raunar boðið hana velkomna í hópinn hafi hún áhuga á slíkum stakkaskiptum. Eins og fram kom í máli hv. þingmanns má rekja þetta kerfi aftur til 2006 og þáverandi ríkisstjórnar Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar. Kerfið var síðan uppfært árið 2017 og hefur þróast alla tíð í mikilli sátt flokkanna á þingi. Ég held að það sé mjög mikilvægt að þessi umræða fari fram þannig að við getum þá orðið sammála um það hvort ástæða er til að gera breytingar á kerfinu. Þær breytingar yrði einnig að gera í sátt. Markmið laganna var að treysta grundvöll stjórnmálaflokkanna og styrkja lýðræðið.
Í þeirri fræðigrein sem ég lagði stund á áður en ég hóf störf sem fjármálaráðherra hefur mikið verið fjallað um umboðsvanda stjórnmálanna, það sem stundum er kallað markaðsbrestur stjórnmálanna, og er það raunar þannig að heil grein hagfræðinnar, svokölluð almannavaldsfræði, fjallar sérstaklega um þennan vanda. Vandinn er sá að þeir sem kjósast til forystu í stjórnmálaflokkum og þeir sem kjósa stjórnmálaflokkana gæta ekki endilega sömu hagsmuna. Þegar þetta fyrirkomulag var tekið upp á sínum tíma voru það viðbrögð við gagnrýni sem hafði borist, m.a. frá Evrópuráðinu, þar sem mælt var með því að stjórnmálaflokkar fengju stuðning til að koma í veg fyrir að þessi umboðsvandi væri meiri en minni. Ástæðan til að óttast fjárhagslega ósjálfstæða stjórnmálaflokka er hversu ódýrt getur verið að fá þá til liðsinnis til að styðja mál sem þröngir hagsmunir með fjárhagslega burði hafa áhuga á að sé komið í gegn. Kemur þá upp sá umboðsvandi sem ég vék hér að áðan. Fyrirkomulagið er þess vegna í eðli sínu lýðræðislegt. Markmið þess er að styrkja undirstöðu lýðræðis og gera eftir fremsta megni reglurnar þannig úr garði að þær séu gegnsæjar, ljóst sé hvaðan fjárhagslegur bakhjarl stjórnmálaflokka kemur, hvert markmið hans er og að gera stjórnmálaflokkana sjálfstæða gagnvart þessum fjárhagslega sterku öflum.
Nú getum við rætt fram og til baka um það hver hæfilegur stuðningur er. Ég hygg að við hv. þm. Diljá Mist Einarsdóttir séum sammála um að stuðningur við stjórnmálaflokka á ekki að vera nein undantekning frá þeirri almennu umræðu um hvort rétt sé forgangsraðað í fjármálum hins opinbera. Þetta er hins vegar umræða sem þarf að taka meðal allra flokkanna á þingi. Þetta er umræða sem þarf að taka að teknu tilliti til smæðar Íslands þar að auki. Það þarf líka að velta fyrir sér hvort samsetning stuðningsins og skipting sé eðlileg, hvort stuðningur vegna sérstakra aðstæðna, svo sem eins og kosninga, sé eðlilegur. Ég mun fyrir mitt leyti fagna þeirri umræðu. Ljóst er að ekkert kerfi er fullkomið. Þetta kerfi er engin undantekning og eins og hv. þingmaður vék að var á tímabili nokkur misbrestur á framkvæmd laganna sem nú hefur verið lagaður. En það gefur okkur ekki síst ástæðu til þess að velta fyrir okkur hvort framtíð þessa kerfis eins og það er sé heppileg, hvort breyta ætti áherslum í því, hvort þróa ætti upphæðir. Ég vil þó í þessu samhengi nefna að í þeirri fjármálaáætlun sem samþykkt var á þinginu í vor er ekki gert ráð fyrir hækkun á framlaginu og mun það þess vegna á tímabili áætlunarinnar (Forseti hringir.) rýrna að raunvirði.