Opinber fjárframlög til stjórnmálaflokka.
Virðulegi forseti. Ég vil byrja á því að þakka málshefjanda fyrir að kalla til þessarar umræðu. Lög um stjórnmálaflokka voru samþykkt á Alþingi árið 2006. Frumvarpið var flutt af formönnum allra flokka á þingi á þeim tíma og var fyrsti flutningsmaður þáverandi formaður Sjálfstæðisflokksins. Það var samþykkt með öllum greiddum atkvæðum. Lögin fela í sér að þak var sett á hvað einstaklingar og lögaðilar mega gefa til stjórnmálaflokka og í staðinn koma greiðslur frá hinu opinbera til að hægt sé að reka þá. Tilgangurinn var skýr; að draga úr hættu á hagsmunaárekstrum og tryggja gagnsæi, auka traust á stjórnmálum og efla lýðræði. Að tillögu sex flokka sem áttu sæti á Alþingi árið 2017 var framlag ríkisins til stjórnmálaflokka hækkað um 127% en þá var við völd ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks, Vinstri grænna og Framsóknar. Miðflokkur, Samfylking og Viðreisn studdu þá tillögu, Flokkur fólksins og Píratar tóku þátt í mótun hennar. Þetta var gert vegna þess að meiri hlutinn flokkanna var með neikvætt eigið fé. Eignir hrukku ekki fyrir skuldum.
Það er athyglisvert að Sjálfstæðisflokknum hafi nú, örfáum árum síðar, snúist hugur varðandi mikilvægi styrkja til stjórnmálaflokka eftir að hafa breyst í einhvers konar fasteignaþróunarfélag og staðið fyrir þéttingu byggðar í kringum Valhöll og fækkun bílastæða. Þar með jók Sjálfstæðisflokkurinn eigið fé sitt gríðarlega, upp í 1,4 milljarða kr. í lok árs 2023. Sjálfstæðisflokkurinn er fyrir vikið í algerum sérflokki, enda á hann rúmlega þrisvar sinnum meira eigið fé en allir aðrir stjórnmálaflokkar landsins til samans. Það verður líka að skoða í ljósi þess að Sjálfstæðisflokkurinn fær meiri framlög frá einstaklingum og fyrirtækjum úr atvinnulífinu, sérstaklega sjávarútvegi, en nokkur annar flokkur. Þessi staða birtist svart á hvítu í ársreikningum stjórnmálaflokka. Á kosningaárinu 2021 fengu þáverandi stjórnarflokkarnir þrír alls 60 millj. kr. í styrki frá fyrirtækjum og þar fór meiri hlutinn til Sjálfstæðisflokks.
Það er mikilvægt þegar við ræðum fjárframlög til stjórnmálaflokka að rifja upp hvers vegna þeim var komið á. Markmið laganna er að auka traust á stjórnmálastarfsemi, tryggja starfsskilyrði og sjálfstæði stjórnmálasamtaka og efla lýðræði (Forseti hringir.) og gegnsæi stjórnmála. Það er vont fyrir lýðræðið ef stjórnmálasamtök þurfa að treysta á framlög frá þeim sem eiga mikið undir mögulegu hagræði í þeim málum sem við fjöllum um (Forseti hringir.) í þessum sal. Þá er hætt við að stjórnmálasamtök og stjórnmálafólk freistist til að gæta frekar að hagsmunum styrktaraðila (Forseti hringir.) umfram hagsmuni almennings þegar þegnir eru fjármunir í miklum mæli frá hagsmunaaðilum.
(Forseti (ÞSv): Forseti bendir þingmönnum á að ræðutími í sérstakri umræðu er tvær mínútur fyrir aðra en málshefjanda og hæstv. ráðherra.)