Opinber fjárframlög til stjórnmálaflokka.
Virðulegur forseti. Mér þykir sumu snúið svolítið á hvolf í þessari umræðu af hálfu sumra hv. þingmanna sem hafa tekið til máls. Það er reynt að gera það tortryggilegt að fyrirtæki og einstaklingar vilji styðja við stjórnmálasamtök og jafnvel hafa áhrif á stefnu stjórnmálaflokka. Það er eðli stjórnmálaflokka að fá til fylgis við sig bæði menn, einstaklinga, og fyrirtæki til þess að móta stefnu í stjórnmálum, til þess að móta stefnu og framtíðarsýn í þessu landi. Öðruvísi þrífast ekki stjórnmálaflokkar eða lýðræðisleg umræða hér en að flokkar og þeir sem bjóða sig fram fái til fylgis við sig einstaklinga og þá sem standa í fyrirtækjarekstri og atvinnulífinu hér á landi, þó það nú væri. Að ætla að gera það tortryggilegt að menn kjósi að gera það, sumir með því að koma inn á fundi, leggja gott til málanna, aðrir kjósa að gera það með fjárframlögum til stjórnmálaflokka — það er ekkert tortryggilegt við það. Það er eðlilegt, það er eðli lýðræðisins og það er bráðnauðsynlegt fyrir umræðuna að umræðan fái stuðning einstaklinga og fyrirtækja, bæði hvað málefnin varðar og með fjárframlögum til að reka sína starfsemi.
Hvert var markmiðið á sínum tíma með lögunum um fjármál stjórnmálaflokka? Það hefur verið reifað hér; til að styrkja lýðræðið, auka traust og gagnsæi. Hvernig ætli það hafi nú gengið? Það þarf enginn að velkjast í vafa um það að lög um fjármál stjórnmálaflokka og ríkisstyrkirnir hafa kallað á fjölgun, hafa valdið fjölgun stjórnmálaflokka. Menn geta síðan velt því fyrir sér hvort það sé verið að auka lýðræðið með því eða auka stöðugleika í íslenskum stjórnmálum, stöðugleika við stjórn landsins, hvort það hafi verið hér síðustu 20 ár afleiðingin. Að auka traust, hér hafa verið nefnd málefni Flokks fólksins sem voru í uppnámi fyrir nokkrum mánuðum síðan og að lokum má nefna gagnsæið, hvort menn hafi raunverulega talið þetta hafa aukið gagnsæi í stjórnmálum, þessir ríkisstyrkir (Forseti hringir.) til stjórnarflokkanna. Ég tel ekki og ég tel fulla þörf á að ræða þetta mál nánar og breyta reglum um fjármál stjórnmálaflokka að þessu leyti.