minning Margrétar hinnar oddhögu.
Frú forseti. Ég mæli fyrir tillögu til þingsályktunar um að heiðra minningu Margrétar hinnar oddhögu. Einhver gæti spurt: Hver er þessi kona? Margrét var listakona, hérlend listakona, sem bjó og starfaði í Skálholti á Suðurlandi á seinni hluta 12. aldar og fyrri hluta 13. aldar. Mér er það sönn ánægja að leggja fram þessa tillögu til þingsályktunar hér í þriðja skipti í þeirri von að þingheimur geti sammælst um að leggja það til að minning þessarar einstöku listakonu sem lifði um aldamótin 1200 verði heiðruð. Efni tillögunnar er:
„Alþingi ályktar að fela menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra að heiðra minningu Margrétar hinnar oddhögu með því að reisa henni minnisvarða. Minnisvarðinn skal reistur í Skálholti verði því komið við. Ráðherra kynni áætlun þess efnis eigi síðar en á haustþingi 2026.“
Meðflutningsmenn mínir á tillögunni eru þingkonurnar Ingibjörg Davíðsdóttir, Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir og Ása Berglind Hjálmarsdóttir.
Frú forseti. Samkvæmt sögu Páls biskups Jónssonar var Margrét hin oddhaga prestskona í Skálholti á ofanverðum dögum biskups og var, eftir því sem sagan segir, „oddhögust allra manna á Íslandi“ um sína daga. Hvorki er vitað um föðurnafn hennar né ættir að öðru leyti.
Páll Jónsson Skálholtsbiskup, sem fæddist 1155 og dó 1211, var framkvæmdamaður mikill og listunnandi. Voru í biskupstíð hans listamenn í Skálholti sem unnu góða gripi í þágu stólsins og skreyttu helgidóminn með fögrum verkum. Margrét var í þjónustu biskups ásamt fleiri listamönnum og bjó í Skálholti ásamt manni sínum, séra Þóri.
Í sögu Páls biskups segir um biskupsstaf af tönn, sem Margrét skar fyrir Pál og var sendur Þóri erkibiskupi í Niðarósi, að hann hafi verið gerður svo haglega að „engi maðr hafði fyrr sét jafnvel gervan á Íslandi“.
Þegar steinkista Páls biskups var tekin úr jörðu og opnuð sumarið 1954 fannst í henni húnn af bagli úr rostungstönn, útskorinn í líki dýrshöfuðs og forkunnarvel gerður. Kristján Eldjárn þjóðminjavörður, sem stýrði uppgreftrinum, taldi líklegt að þarna væri á ferð verk Margrétar högu og hafa margir hallast að þeirri skoðun með honum en einnig hefur verið vakin athygli á því að form og handbragð útskurðarins bendi til þess að uppruna hans gæti verið að leita á Bretlandseyjum.
Margrét skar út margvíslega muni fyrir biskup og hefur verið orðuð við mikla merkisgripi frá miðöldum sem fundust árið 1831 á Ljóðhúsum í Suðureyjum, undan norðvesturströnd Skotlands. Þar kom í ljós safn haglega útskorinna taflmanna sem flestir eru úr rostungstönn en nokkrir úr búrhvalstönnum. Eru 78 þeirra úr manntafli en 14 eru taldir vera hnefataflsmenn.
Ekki liggur fyrir nákvæm vitneskja, frú forseti, um fundarstað eða önnur atvik af þessum fundi taflmannanna frá Ljóðhúsum. Ýmsar sögur gengu um þetta og komust á blöð og bækur, svo sem að taflmennirnir hefðu verið í fórum skipreika sjómanns sem látið hefði lífið fyrir morðvopnum gráðugra eyjarskeggja sem ágirntust gersemarnar eða að taflmannasveitin hefði fundist þegar kýr var dregin upp úr jarðfalli. Telja flestir þessar sögur og aðrar áþekkar til marks um hina frjóu sagnahefð Suðureyinga sem lifi og þrífist án þvingandi tengsla við staðreyndir og veruleika.
Óvissan um kringumstæður taflmannafundarins á Ljóðhúsum veldur því að erfitt er að henda reiður á uppruna þeirra og sögu áður en þeir komust inn fyrir dyrastaf breskra safna þar sem þeir eru þjóðargersemi, á Bretlandi, þangað sem þeir náðu flestir en þó ekki allir. Ekki er ýkja langt síðan virðulegur hrókur úr skáksveitinni frá Ljóðhúsum var boðinn upp á listmunauppboði hjá Sotheby's í Lundúnum þar sem hann seldist fyrir 750.000 pund.
Allmargar kenningar, misjafnlega sennilegar, hafa verið viðraðar um uppruna taflmannanna góðu. Fræðimenn breska þjóðminjasafnsins hallast flestir að því að þeir séu frá Noregi og er Þrándheimur einkum talinn líklegur upprunastaður. Norsk starfssystkin þeirra bresku styðja skoðun þeirra og vísa til samsvarana í norskum listiðnaði. Danmörk og Svíþjóð hafa verið nefnd til, einnig Bretlandseyjar og Írland, en elst er hugmyndin um að íslenskur listamaður hafi lagt heiminum til þessa forkunnarfögru gripi.
Tilgátan um íslenskan uppruna taflmannanna hefur fylgt þeim allt síðan þeir komu aftur til mannheima úr sinni sögulausu útlegð og vistuðust á söfnum í Bretlandi. Engum hefur tekist að færa öruggar sönnur á uppruna taflmannanna frá Ljóðhúsum og enn kvikna af og til lífleg skoðanaskipti um þessa spennandi ráðgátu.
Tveir Íslendingar, Guðmundur G. Þórarinsson, verkfræðingur og fyrrverandi alþingismaður, og Einar S. Einarsson, fyrrverandi forseti Skáksambands Íslands, leituðust við það fyrir um áratug að styrkja tilgátuna um íslenskan uppruna taflmannanna margnefndu með því að benda á að einungis í íslensku og ensku hefði verið haft biskupsheiti um taflmann og honum gefið útlit sem minnti á búnað biskups. Slíkt útlit hafa Ljóðhúsataflmennirnir og væri það glöggt merki um íslenskan uppruna þeirra. Þá benti Guðmundur á frásögn Páls sögu biskups af Margréti högu og kvað þar kominn nafnkunnan íslenskan útskurðarmeistara sem vel gæti hafa innt af hendi svo ágætt verk sem gerð Ljóðhúsataflmannanna væri.
Frú forseti. Með erfðatækni nútímans mætti komast nær sannleikanum með því að bera saman erfðaefni úr rostungstönnunum og tanna úr rostungum sem tilheyrðu einmitt íslenskum stofni rostunga og ku hafa verið hér við land á söguöld og þá jafnframt bera saman við aðra rostungsstofna frá Grænlandi til að mynda. Þannig gætum við komist nær kenningunni um það hvaðan þessir taflmenn væru.
Þrátt fyrir að uppruni taflmannanna hafi ekki og verði líklega seint staðfestur að fullu er ljóst að Margrét hin oddhaga var merk kona sem á 12. öld var talin færust allra á Íslandi í útskurði. Og enn finnast útskurðarmeistarar hér á landi. Ekki ýkja langt frá Skálholti, niður í Flóahreppi, býr einn mesti útskurðarmeistari sem við Íslendingar höfum eignast. Það er ekki svo langt síðan ég heimsótti Sigríði Jónu Kristjánsdóttur á Grund, sem kölluð er Sigga á Grund, sem er færust kvenna á Íslandi og jafnvel þótt víðar væri leitað í útskurði, og átti þess kost að skoða marga fagra muni á heimili hennar og vinnustofu sem hún hefur skorið út á undanförnum árum.
Við þurfum að heiðra minningu slíkra meistara, eins og Margrétar oddhögu, sem gengnir eru og það verður best gert með því að reisa Margréti veglegan minnisvarða, helst á þeim stað þar sem hún starfaði lengst af, þ.e. í Skálholti.
Frú forseti. Þegar mælt var fyrir málinu hér á þingi 2021 bárust tvær umsagnir sem báðar voru jákvæðar, önnur frá Listasafni Íslands og hin frá vígslubiskupnum í Skálholti. Með leyfi forseta ætla ég að lesa upp úr umsögn Listasafns Íslands:
„Listasafn Íslands er sammála að heiðra megi minningu Margrétar hinnar oddhögu með því að reisa henni minnisvarða á þeim stað þar sem heimildir geta að hún hafi starfað.
Það minnismerki yrði táknrænt fyrir framlag íslenskra kvenna til listar; til allra þeirra huldukvenna sem sagan greinir ekki frá eða lítið er vitað um frá fyrri tíð. Verðugt er að geta Margrétar sem fyrstu nafngreindu listakonunnar og það þrátt fyrir að engir hlutir séu til eftir hana svo vissa sé, heimildir mjög fáorðar. Ýmsar hugmyndir eru uppi um sköpunarverk hennar sem er heillandi að segja frá þó slá verði varnagla við fullyrðingum og leyfa getgátum að lifa.“
Með leyfi forseta ætla ég að lesa nokkrar setningar úr umsögn vígslubiskupsins í Skálholti frá 2021. Þar segir, með leyfi forseta:
„Það hefur allt of lítið verið gert af því að lyfta og heiðra minningu þeirra kvenna sem unnið hafa og þjónað í Skálholti í allar þær aldir sem biskupsstóll hefur verið þar á hinu forna höfuðbóli þeirra Ísleifs Gissurarsonar og Döllu Þorvaldsdóttur, fyrstu biskupshjóna Íslands.“
Síðar segir, með leyfi forseta:
„Með Páli biskupi heldur áfram að streyma til landsins þekking og listræn hæfni. Frá þessum tíma eigum við minjar sem eru merkar og sannarlega gerðar hér í Skálholti og á vegum biskupsstólsins. Ein allra merkasta listakona Íslands á þessum tíma er Margrét hin oddhaga.“
Síðar segir, með leyfi forseta:
„Þingsályktunartillagan hefur verið tekin til umræðu hér í Skálholti á fundi stjórnar Skálholtsstaðar og einnig á fundi í Kirkjuráði Þjóðkirkjunnar. Í báðum þessum stjórnum er tillögunni fagnað og þykir hún hið besta mál, svo notuð séu orð stjórnarmanna og formanns stjórnarinnar, Drífu Hjartardóttur. Þá hefur og framkvæmdastjóri Skálholts, Herdís Friðriksdóttir, fagnað þessari tillögu.
Ég hvet Alþingi til að samþykkja þessa þingsályktun og er fús til samstarfs og einnig til samtals ef þörf er á því til að málið fái framgang.“
Flutningsmenn telja að Íslendingum væri sómi að því að koma upp minnismerki um Margréti hina oddhögu til að heiðra minningu þessarar merku konu. Margrét hin oddhaga er ein örfárra listkvenna í veröldinni sem getið er með nafni og uppi voru á miðöldum. Flutningsmenn leggja til að minnisvarðinn verði í Skálholti, verði því við komið, þar sem Margrét starfaði í þágu biskups við iðn sína.
Að loknum umræðum um málið óska ég eftir að það gangi til allsherjar- og menntamálanefndar og fái þar góða umfjöllun og afgreiðslu.