157. löggjafarþing — 14. fundur,  8. okt. 2025.

rannsókn á orsakaferli í aðdraganda sjálfsvíga og dauðsfalla vegna óhappaeitrana.

58. mál
[17:33]
Horfa

Grímur Grímsson (V) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka fyrir andsvarið. Við erum hér svo sem meira í samtali, ekkert endilega að svara spurningum. Mig langaði að nefna hér samt sem áður t.d. skráningu hjá lögreglu, sem ég hygg að sé hægt að horfa til í þessari rannsókn, að það hefur verið vandi að skrá. Auðvitað fer fram rannsókn en það er ekki alltaf hægt að kveða upp úr um hvort viðkomandi hafi ætlað að svipta sig lífi eða hvort það hafi verið ótímabært andlát af völdum lyfja.

Ég ætla bara að benda á að það er gott að horfa til þess að það sé einmitt hægt að greina og skrá gögn þannig að þetta liggi fyrir vegna þess að oft og tíðum við rannsókn á svona málum, sem þarf alltaf að fara fram og fer alltaf fram, þá er það til skoðunar hvort það er eitthvað annað sem styður það að viðkomandi hafi ætlað að svipta sig lífi. Það getur verið bréf, það getur verið einhvers konar áfall sem viðkomandi er að bregðast við. En það er ekki alltaf. Ég segi það bara að það er mikilvægt að við söfnum þessum gögnum, af því að ég gleymdi að nefna það áðan, og upplýsingar munu hjálpa okkur til að takast á við og skipuleggja það að ná árangri til að fækka ótímabærum andlátum.