157. löggjafarþing — 14. fundur,  8. okt. 2025.

rannsókn á orsakaferli í aðdraganda sjálfsvíga og dauðsfalla vegna óhappaeitrana.

58. mál
[18:02]
Horfa

Flm. (Ingibjörg Isaksen) (F):

Herra forseti. Mig langaði bara að koma upp og þakka öllum fyrir sem tóku þátt í umræðunni. Við erum búin að fara vítt yfir sviðið og eiga bara mjög gott samtal. Það er oft erfitt að ræða þessi málefni en við höfum samt gert það, finnst mér, af yfirvegun og virðingu. Ég bind vonir við að við náum að vinna þetta mál saman og ég ætla að skrásetja og ljósrita ræðurnar sem komu varðandi stuðninginn þannig að ég þurfi ekki að koma aftur í fimmta skiptið heldur næst verði það einmitt til þess að fara í síðari umræðu. Ég bind vonir við að við náum að vinna þetta saman því að þó að við tökumst oft á í pólitík þá getum við líka verið sammála um viss verkefni og vissa vegferð og ég heyri ekki betur en að þetta mál sé eitt af þeim. Ég þakka kærlega fyrir góðar umræður og stuðninginn við málið.