157. löggjafarþing — 14. fundur,  8. okt. 2025.

leikskólar.

45. mál
[18:22]
Horfa

María Rut Kristinsdóttir (V):

Herra forseti. Ég vil byrja á því að þakka hv. þm. Dagbjörtu Hákonardóttur fyrir framlagningu þessa þingmáls, um breytingu á lögum um leikskóla, nr. 90/2008, um innritun í leikskóla. Ég fagna því að við séum að ræða leikskólamál hér í þessum sal. Við gerum held ég allt of lítið af því almennt. Ef það er eitthvað sem snertir kjarnaumræðu um fjölskyldumál og fjölskylduna þá eru það leikskólarnir og þetta fyrsta skólastig sem á skilið að við ræðum það meira hér í þessum þingsal.

Leikskólinn er auðvitað bara — verandi móðir sem á núna í fyrsta skipti börn á öllum skólastigum, [Hlátur í þingsal.] ég á þrjú börn og hef töluverða reynslu af því að fylgja þeim eftir í gegnum öll þessi skólastig — ákveðið hjarta. Maður fer þarna með litla krílið sitt og treystir frábæru fagfólki fyrir umönnun þess á meðan við förum og sinnum okkar störfum. Það er ekkert bara í heiminum dýrmætara en þessi kríli og þeirra velferð og það að búa vel utan um þetta kerfi. Líkt og hv. þm. Dagbjört Hákonardóttir kom inn á hér áðan er þetta kerfi, og öll kerfi, mannanna verk. Ef það eru einhverjar svona kerfislægar villur sem þjóna ekki tilgangi sínum þá ættum við auðvitað bara breyta þeim. Það er líka mannanna verk að breyta kerfunum.

Við vorum að ræða excel-skjölin í annarri umræðu áðan og í einhverjum excel-skjölum þá geta væntanlega einhverjir klórað sér yfir tæknilegum útfærslum hér og þar. En raunveruleikinn er síðan sá, líkt og hv. þingmaður nefndi hér áðan, að 460 börn eru á biðlistum eftir flutningi á milli leikskóla. Það hlýtur að segja einhverja sögu um það að fólk hafi þegið pláss á óhagkvæmum stað og er að bíða eftir því að fá pláss á þeim leikskóla sem er þá í þeirra nærumhverfi. Á morgnana er tilveran stundum flókin og maður er að vekja og klæða og fæða og allt þetta — fæði, klæði, húsnæði — maður er að koma börnunum út í daginn og fara svo að skutla á einn stað og svo annan og koma sér síðan í vinnuna. Þetta er auðvitað bara púsluspil. Ég á vini sem búa í 107 og voru að skutla börnum sínum upp í Grafarholt til að koma þeim í dagvistun. Þetta er auðvitað bara ekki gott kerfi.

Það er alveg rétt sem hv. þingmaður kom inn á áðan að það er mjög stór áskorun fyrir okkur sem samfélag að gera leikskólakerfið gott. Þetta er kannski umræða sem einskorðast að mestu leyti við höfuðborgarsvæðið. Ég er stoltur landsbyggðarþingmaður og í mínum heimabæ getur fólk meira að segja labbað bara með börnin sín í leikskólann í rólegheitum. Þetta er ekki stórt vandamál þar, ekki biðlistar og ekki mönnunarvandi, þar er fagfólk o.s.frv. En auðvitað er stærðin hér allt önnur.

Ég kem úr þorpi sem telur undir 200 manns þannig að það er kannski svolítill munur þarna á. Ég held að það að koma umræðu um leikskólamálin upp úr þessum flokkspólitísku skotgröfum sé eitthvað sem væri alveg ofboðslega gott fyrir okkur öll að gera. Það er pínu hjákátlegt að sjá sömu flokka fagna einhverju módeli í einu sveitarfélagi þar sem þau eru í meiri hluta gagnrýna sambærilegt módel sem verið er að leggja fram í öðru sveitarfélagi bara vegna þess að þau eru í minni hluta. Við þurfum að koma okkur upp úr þessu og ræða kerfin út frá þörfum einstaklinganna og þá allra helst þörfum barnanna en ekki út frá öðrum þörfum. Þetta er auðvitað fyrsta skólastigið og þarna er unnin alveg ótrúlega mikil forvinna fyrir grunnskólagöngu o.s.frv.

Ég hef verið að velta því fyrir mér eftir kjördæmaviku og eftir mikla umræðu um skólamál og ákveðinn vanda sem blasir við og umræðuna sem hefur átt sér stað hérna upp á síðkastið, hvort hreinlegast væri að lögbinda þetta skólastig frá einhverjum aldri; þyrfti ekki að vera frá 18 mánaða, mögulega tveggja ára eða eitthvað svoleiðis. Við vitum líka að þetta snýst allt um peninga. Þetta snýst allt um það hvernig á að reka þetta skólastig sem er ekki lögbundin þjónusta. Sveitarfélögin tala líka fyrir því. Ég var á fjármálaráðstefnu sveitarfélaga um daginn þar sem þetta var m.a. til umræðu í hliðarsölum, þar sem var verið að ræða það að við erum með velferð barnanna okkar í höndunum en við erum líka að rífast um hver á að borga fyrir þjónustuna og hvernig á að tryggja sveitarfélögunum þann styrk. Ég er svolítið hugsi yfir þessu með lögbindinguna sjálf og ég fagna því að við séum að ræða hér þessi mál. Ég er í allsherjar- og menntamálanefnd og hlakka til að takast á við þetta mál í nefndinni.

Ég hjó eftir því að hv. þingmaður hefur lagt þetta mál fram fimm sinnum. [Hlátur í þingsal.] Við vorum áðan að ræða mál sem hefur verið lagt fram fjórum sinnum. Þetta eru kannski raunir þeirra sem eru í stjórnarandstöðu, að leggja stundum fram þingmannamál oft og ná jafnvel ekki að mæla fyrir þeim. Þannig að þetta er bara af hinu góða. Mér fannst framsaga hv. þingmanns bara mjög skýr og vildi aðallega koma hér upp og koma með þennan punkt um að kerfi séu bara mannanna verk. Þetta eru engin geimvísindi. Ef það eru einhver tæknileg úrlausnarefni þá hljótum við að geta fundið út úr því.

Mér finnst líka gott að fá áréttingu um að áfram fái forgang börn með sérstakan vanda eða fatlanir og börn sem búa við sérstakar félagslegar aðstæður, að það sé ekki verið að hleypa systkinum í forgang fram fyrir þau, og að áfram gildi reglur sem hafa skipt mjög miklu máli til að tryggja þeirra dagvistun. Við erum að stefna í vetur fyrir sveitarstjórnarkosningar og ég hugsa að þessi mál og önnur sem snúa að sveitarstjórnarstiginu verði kannski meira áberandi hér en oft áður. Það er bara gott að taka oftar umræðu sem snýr að þessu daglega lífi fólks í landinu og hvernig við náum betur utan um þennan flókna veruleika sem við þekkjum held ég flest á eigin skinni.

Ég vil bara þakka fyrir þetta frumvarp. Það er búið að vera áhugavert að setja sig inn í þetta og ég hlakka til að takast á við þetta mál í allsherjar- og menntamálanefnd.