157. löggjafarþing — 15. fundur,  9. okt. 2025.

stöðugleikareglan og skattahækkanir.

[11:03]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Daði Már Kristófersson):

Forseti. Ég bið hv. þm. Nönnu Margréti Gunnlaugsdóttur afsökunar, ég hélt ég hefði svarað með því að segja: Allar þær sem koma fram í fjárlagafrumvarpi, þar með talið kílómetragjald og krónutöluhækkanir.

Ég var svo spurður um … (NMG: Af hverju liggur ekki fyrir skuldaþróunaráætlun? )Já, þakka þér kærlega fyrir. Skuldaþróunaráætlunin kemur auðvitað fram í fjármálastefnu sem var samþykkt í vor og liggur þar til grundvallar áætlun um að ná skuldum, ef ég man rétt, niður fyrir viðmið árið 2034.