157. löggjafarþing — 15. fundur,  9. okt. 2025.

dýrasjúkdómar og varnir gegn þeim.

89. mál
[11:06]
Horfa

Sigurður Ingi Jóhannsson (F):

Virðulegur forseti. Ég vil bara fagna því að við séum að greiða atkvæði um þetta mál í dag. Fyrri starfa minna vegna hef ég lengi haft áhuga á því að við breyttum um aðferðafræði við útrýmingu riðuveiki í landinu. Það sem hefur verið að gerast hér á undanförnum árum, m.a. að frumkvæði öflugra einstaklinga í samfélaginu, er frábært. Þessi niðurstaða, að við séum komin á þennan stað, mun hjálpa verulega mikið, ekki síst í ljósi nýlegra frétta úr Skagafirði þar sem ungur sauðfjárbóndi þarf að skera niður hluta af sínu fé en getur einmitt vegna þessarar stefnumörkunar haldið áfram með sinn eigin stofn sem er þá vonandi orðinn þolinn fyrir þessum vágesti sem barst hingað til lands frá Evrópu, eins og margt annað slæmt.