157. löggjafarþing — 15. fundur,  9. okt. 2025.

dýrasjúkdómar og varnir gegn þeim.

89. mál
[11:07]
Horfa

Bergþór Ólason (M):

Frú forseti. Ég vil nota þetta tækifæri til að óska okkur til hamingju með að þetta mál sé að klárast hérna en sérstaklega óska ég bændum til hamingju með að þetta mál sé að klárast. Þetta er í engu samhengi lokaorrustan við riðuna en þetta er mögulega sú mikilvægasta og sú líklegasta til góðs árangurs sem við höfum staðið frammi fyrir lengi. Þetta er jákvætt mál og gott að þessi þróun eigi sér stað og aftur ítreka ég hamingjuóskir mínar til bænda og landsmanna allra.