dýrasjúkdómar og varnir gegn þeim.
Frú forseti. Ég vil koma hingað upp og gera grein fyrir atkvæði mínu í þessu mikilvæga máli. Við erum að greiða atkvæði um mál sem snertir landbúnað hér á landi og skiptir gríðarlega miklu máli eins og hefur komið fram við meðferð málsins. Það er mjög ánægjulegt að við séum að afgreiða þetta mál á degi landbúnaðarins og því ber að sjálfsögðu að fagna. Í þessu máli hefur reynsla og þekking bænda auðvitað haft verulega mikil áhrif á þróun þessara mála og mikilvægt að við séum að byggja á þeirra þekkingu og þekkingu þeirra sérfræðinga sem hafa unnið að málinu og rutt brautina í þessu. En ég segi auðvitað já og óska okkur öllum til hamingju með þetta skref, þó að þetta sé eitt skref þá er það mikilvægt.