157. löggjafarþing — 15. fundur,  9. okt. 2025.

dýrasjúkdómar og varnir gegn þeim.

89. mál
[11:09]
Horfa

Guðrún Hafsteinsdóttir (S):

Virðulegi forseti. Enn á ný höfum við í þessari viku verið minnt á þann vágest sem riðan er í sveitum landsins og hefur haft gríðarlega alvarlegar afleiðingar fyrir bændur. Það er því mjög ánægjulegt að Alþingi er að stíga þetta skref hér í dag og, eins og hér var nefnt, á degi landbúnaðarins. Ég vil því nota tækifærið til að óska bændum til hamingju með það. En ég vil líka nota tækifærið og þakka þingheimi og nefndinni fyrir vel unnin störf. Við erum að samþykkja þetta allt á grænu ljósi. Það eru sterk og skýr skilaboð um að þingheimur ætlar að styðja við íslenskan landbúnað.