157. löggjafarþing — 15. fundur, 9. okt. 2025.
dýrasjúkdómar og varnir gegn þeim.
89. mál
Frú forseti. Ég vil fagna því að þetta mál sé til lykta leitt á þessum fundi. Það hefur verið ömurlegt að eiga við þennan sjúkdóm og maður hefur horft upp á það í nærumhverfi sínu hvernig hann hefur farið með bændur, bæði fjárhagslega og tilfinningalega, þannig að þetta er mjög gott mál og jákvætt að við sjáum vonandi fyrir endann á þessum hræðilega sjúkdómi sem hefur herjað mjög illa á landsbyggðina. Ég segi auðvitað já og fagna því að það sé von til þess að þessi sjúkdómur heyri sögunni til.