Menntamál.
Virðulegur forseti. Ég þakka fyrir frumkvæðið að þessari góðu umræðu og fagna því að við séum að taka þetta mál hér fyrir, það er mjög mikilvægt. Ég held að úti í samfélaginu geri fólk sér almennt ekki grein fyrir því í hvaða óefni kann raunverulega að stefna þegar við horfum á skólakerfið, hvort sem það er grunnskólakerfið eða leikskólakerfið. Ef við horfum aðeins á þennan þátt í sambandi við móðurmálskunnáttu innflytjenda og barna innflytjenda þá er þar að skapast mjög flókið ástand þar sem við erum með slíkan fjölda að fyrir 30–40 árum, ef við hefðum spurt einhvern áður en þetta varð allt saman eðlilegt í okkar augum: Er hægt að vera með tíu tungumál í einum bekk og ná raunverulegum árangri? þá hefðu flestir sagt fullum fetum nei. En núna þurfum við að láta eins og þetta sé hægt og reyna að vinna þannig að þetta sé hægt og þetta verður að vera hægt af því að staðan er einfaldlega sú. Fyrsta skrefið er þá einmitt að horfast í augu við það hversu flókið þetta er og hversu flókið þetta verður. Ég geri ákveðna athugasemd líka við það t.d. sem hv. þm. Jón Pétur Zimsen segir, að þetta sé val um það hvernig við höfum ástandið í skólakerfinu. Á einhverjum tímapunkti er verkefni orðið slíkt og svo risavaxið eins og núna að þetta er ekki alveg val, við getum ekki alveg náð sama árangri og við hefðum óskað okkur.
Hv. þingkona Samfylkingarinnar talar um að skólinn sé jöfnunartæki fyrst og fremst, ég veit ekki hvort hv. þingmaður notaði orðalagið „fyrst og fremst“ en alla vega jöfnunartæki og þetta er mikið í umræðunni. Það er að sjálfsögðu jöfnunartæki, það er galdur íslenska skólakerfisins. En ef það hlutverk, jöfnunartæki, er orðið að aðalhlutverki skólakerfisins þá fer hlutverkið menntunartæki og vettvangur menntunar — við skulum segja að við viljum alla vega ekki að sá þáttur líði fyrir hin markmiðin sem eru þó göfug. Það er nefnilega málið, við getum ekki jafnað allt ef við þurfum að jafna það niður á við.
Við þurfum að eiga mjög breiða umræðu um þetta og við höfum tvær mínútur hvert um sig hérna. En það eru gífurlegar áskoranir fram undan. Við verðum að horfast í augu við þær og ég minni á að til lengri tíma þá er þetta ástand ekki að fara að skána bara með svona aðgerðum hér og þar, heldur er það að verða flóknara og verra. Það tengist stefnu í innflytjendamálum og það er líka enn stærri umræða sem við erum ekki í sérstökum umræðum um.