Menntamál.
Virðulegur forseti. Hérna er talað um að í ljósi þess hve fjölbreyttur hópurinn sé orðinn þá sé hitt og þetta í einhverjum skilningi ekki hægt lengur. Ég verð að gera fyrirvara við þessa hugsun í víðum skilningi. Það má lesa um það í Morgunblaðinu í dag að innan við þriðjungur framhaldsskólanema lesi bók eftir Halldór Laxness í skólanum. Það er náttúrulega skandall að mínu mati að fólk geti almennt útskrifast með stúdentspróf án þess að lesa bók eftir Halldór Laxness. Mér finnst það í einhverjum skilningi vera skandall. Hvað á að kenna í staðinn? Ég hef verið að tala um kynjafræðina góðu. Ég held að sífellt færri komist í gegnum skólann án þess að læra kynjafræði, jafnvel píparar, en ekki Laxness. Það þarf ekki að vera Heimsljós eða Sjálfstætt fólk. Það mætti vera Íslandsklukkan eða einmitt Atómstöðin eða Brekkukotsannáll. Mistökin væru einmitt að að svara áskorunum í menntakerfinu með því hálfpartinn að gefast upp.
Það verður að mæta þörfum nemenda en kerfið á líka að meta þarfir nemenda fyrir þá. Það er hlutverk kerfisins og þetta er hluti af sama marxíska hugsunarhætti um að það megi ekki leiðrétta málvillur vegna þess að þá kynni einhverjum einhvers staðar að líða illa; að þar með gefumst við upp á fögru máli. Ég held að þetta séu sambærileg mistök. Þetta er ákveðin uppgjöf og ég held að við verðum að muna það að skólakerfið gegnir mjög miklu hlutverki gagnvart þjóðmenningu og menningararfi okkar og kjarninn í því eru bókmenntirnar okkar og sögurnar, hvort sem það eru nútímabókmenntir eða Íslendingasögur. Við verðum að kenna þetta, að mínu mati, og við megum ekki gefa neinn afslátt af því. Við höfum verið að gefa sífellt meiri afslátt af því og ég held að það sé ekki leiðin fram á við. Af þessu tilefni er ég hér með tilvitnun í Kristnihaldi undir jökli, sem á vel við um íslenska þjóð að mínu mati og verður að eiga áfram við. Hún er svohljóðandi, með leyfi forseta: „Sá sem ekki lifir í skáldskap lifir ekki af hér á jörðinni.“