Menntamál.
Herra forseti. Ég vil þakka kærlega fyrir umræðuna, hún hefur verið mjög jákvæð og góð. Auðvitað er það þannig að við erum að ræða áskoranirnar, minna kannski það sem gengur vel og það er margt sem er gert vel í íslensku menntakerfi og það er alveg rétt.
Mig langar aðeins að beina sjónum mínum að því sem hæstv. ráðherra kom inn á, hann taldi upp þó nokkur atriði, m.a. skólaþjónustu, það eigi að koma frumvarp eftir ár sem tengist meiri stoðþjónustu sem er lykilþáttur í því að styðja við skólastarf. Mig langar til að spyrja hæstv. ráðherra: Af hverju þurfum við að bíða í heilt ár eftir þessu frumvarpi? Ég veit að það hefur verið unnið að þessu undanfarna mánuði í ráðuneytinu. Eins líka varðandi námsgögnin, að þau verði gerð gjaldfrjáls. Þetta frumvarp var lagt fram á vorönn, unnið í allsherjar- og menntamálanefnd, svei mér þá ef nefndarálit hafi ekki verið tilbúið. Af hverju erum við að bíða fram í mars til að fá það fram aftur?
Það er ýmislegt sem hægt er að gera betur og ég beindi spurningum til hæstv. ráðherra áðan varðandi það hvort hann hygðist endurskoða samsetningu kennaranáms, m.a. með tilliti til áherslu á íslensku og lestrarkennslu og eins líka hvort hann hygðist tryggja meiri fjármuni til íslenskukennslu en ekki síður fjármuni til námsgagnagerðar. Mér skilst að sú krónutala sem hefur farið í gerð námsgagna hafi lítið breyst frá árinu 2000, sem má í rauninni segja að sé skandall.
Það er alveg ljóst að við þurfum að grípa til aðgerða og ég bind vonir við það að hæstv. ríkisstjórn láti til skarar skríða af því að það kemur skýrt fram í stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar að þau ætli að leggja áherslu á íslenskukennslu, læsi og aðgengi að fjölbreyttum námsgögnum. Við bindum vonir við að sjá slíkt á næstu mánuðum vegna þess að það er alveg ljóst að starfsumhverfi kennara hefur breyst gríðarlega. Við eigum ekki bara að benda á stjórnvöld, við eigum ekki bara að benda á kennara eða skólayfirvöld. Við þurfum öll að axla ábyrgð á þessu, hvort sem það eru (Forseti hringir.) foreldrar, stjórnmálamenn, kennarar eða aðrir. Það þarf samhent átak og ég styð hæstv. ráðherra til góðra verka.