skyldutrygging lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða.
Herra forseti. Ég mæli hér fyrir máli sem var líka á dagskrá síðasta þings en náði þá ekki fram að ganga. Ég er fyrsti flutningsmaður á þessu máli og flutningsmenn með mér eru Eiríkur Björn Björgvinsson, Grímur Grímsson, Guðbrandur Einarsson, Heiða Ingimarsdóttir, Jón Gnarr, María Rut Kristinsdóttir og Pawel Bartoszek.
Í raun og veru er hér verið að leggja til að það falli út orð úr lögum um skyldutryggingu lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða. Þetta er ákvæði sem stundum hefur verið kallað ákvæði um sjálfskaparvíti og það er mitt mat og okkar flutningsmanna að þetta ákvæði sé tímaskekkja. Það samræmist ekki þeim hugmyndum sem við höfum um fíknisjúkdóminn í dag og tekur ekki mið af þeirri framþróun sem hefur orðið á vísindasviðinu þegar kemur að því að meta hvers konar vandi er til staðar hjá þeim sem eru með fíknisjúkdóm. Þetta er í raun og veru þess eðlis að það kollvarpar öllu því sem við vitum um sjúkdóminn í dag, eða gengur þvert gegn því getum við kannski frekar sagt. Eins og ég segi þá lagði ég þetta fram á síðasta löggjafarþingi og endurflyt það núna óbreytt. En það er þó a.m.k. búið að bæta við í greinargerðina því sem kom fram í umsögnum við málið þegar það var flutt hér síðast. Þá komu nokkrar umsagnir fram og þær voru allar mjög jákvæðar utan þess að ein varpaði fram ákveðnum spurningum sem væri gott fyrir nefndina að svara í vinnslu málsins.
Svo að við förum bara í gegnum þetta þá erum við að tala um 1. mgr. 15. gr. laga um skyldutryggingu lífeyrisréttinda. Þar kemur fram, með leyfi forseta:
„Sjóðfélagi á rétt á örorkulífeyri ef hann verður fyrir orkutapi sem metið er 50% eða meira, hefur greitt í lífeyrissjóð í a.m.k. tvö ár og orðið fyrir tekjuskerðingu af völdum orkutapsins.“
Samkvæmt 2. mgr. sömu greinar skal framreikna örorkulífeyri samkvæmt reglum sem nánar er kveðið á um í samþykktum, enda hafi sjóðfélagi greitt til lífeyrissjóðs í a.m.k. þrjú ár á undanfarandi fjórum árum, þar af a.m.k. sex mánuði á síðasta tólf mánaða tímabili. Í lok 2. mgr. 15. gr. laganna segir einnig að ekki megi rekja orkutap viðkomandi til ofnotkunar áfengis, lyfja eða fíkniefna. Það er þetta sem hefur stundum verið nefnt ákvæði um sjálfskaparvíti og er það sem er undir hér í þessari umræðu.
Þetta ákvæði um sjálfskaparvíti, eða sú hugsun sem er á bak við það, á sér mjög langa sögu í íslenskum lögum. Þetta var til að mynda í lögum um alþýðutryggingar frá árinu 1936. Þar kom fram að atvinnuleysissjóður ætti ekki að veita atvinnuleysisstyrki til þeirra sem hefðu misst atvinnu af ástæðum sem þeir sjálfir ættu sök á, svo sem vegna drykkjuskaparóreglu. Við tökum náttúrlega eftir orðalaginu þarna, þetta er ekki orðalag sem við myndum nota í dag, enda erum við komin svolítið marga áratugi aftur í tímann. Svona ákvæði var líka að finna sem skilyrði fyrir greiðslu sjúkrabóta í lögum um almannatryggingar, þau lög voru sett 1946. Ákvæðið um sjálfskaparvíti hvarf hins vegar úr lögunum þegar lög um almannatryggingar frá árinu 1971 tóku gildi. Það kemur fram í greinargerð með þessu máli, og það er hægt að lesa sér til um það í þingskjalinu sem fylgir, að í reglugerðum og samþykktum ýmissa lífeyrissjóða hafi verið tekið mið af lögum um almannatryggingar og þaðan voru ættuð ákvæði um brottfall réttinda á grundvelli sjálfskaparvítis. Það er verið að rekja þetta svolítið ítarlega hér í greinargerðinni og ég hvet þingmenn til að kynna sér það sem þar kemur fram.
Við erum hér, með framlagningu þessa máls og með markmiðum þessa frumvarps, að fella úr lögunum skilyrði framreiknings lífeyrisgreiðslna þess efnis að ekki megi rekja orkutap til ofnotkunar áfengis, lyfja og vímuefna. Hugsunin á bak við sjálfskaparvítið stenst ekki þær kröfur sem við gerum til vísindalegrar þekkingar þegar kemur að fíkn og fíknisjúkdómum. Þekkingunni fleytir fram, skilningur í samfélaginu verður meiri og nú tölum við auðvitað um þetta sem sjúkdóm. Við tölum ekki um þetta lengur sem einhvers konar ístöðuleysi. Þetta er bara einfaldlega flókinn sjúkdómur sem getur átt sér einhverjar félagslegar skýringar. Jafnvel er um að ræða erfðafræðileg atriði. Þetta er flokkað sem geðsjúkdómur og það er okkar að láta löggjöfina í landinu endurspegla þá hugsun. Það er þess vegna sem við erum að leggja þetta mál fram. Fíkn á ekki að meðhöndla sem sjálfskapað ástand heldur sem sjúkdóm sem á sér flóknar félagslegar, líkamlegar og hugrænar rætur.
Ég get auðvitað haldið langa ræðu um það hvers eðlis þessi sjúkdómur er. Hann birtist með gríðarlega mismunandi hætti hjá einstaklingum. Hann kemur fram sem mikill vandi á misjöfnum æviskeiðum fólks. Hvernig fólk notar vímuefni er líka mjög breytilegt á milli einstaklinga, það getur líka verið breytilegt á milli efna. Mín persónulega reynsla af þessum sjúkdómi, og það sem ég hef lært af því að vera mikið innan um fólk sem er að glíma við þennan vanda, segir manni bara einfaldlega að það ætlar sér enginn að vera svona. Það vilja allir komast frá þessum vanda en það er oft hægara sagt en gert. Ég ætla kannski að koma nánar að því síðar í ræðunni hvernig þetta getur birst út frá mismunandi forsendum í lífi einstaklinga.
Við erum að leggja það þannig upp hér í þingmálinu að í þessu samhengi þurfum við að líta til jafnræðisreglu stjórnarskrárinnar. Þar erum við að nefna að það sé álitaefni hvort ákvæði um sjálfskaparvíti samrýmist reglunni, þ.e. að þeim sem kljást við fíknisjúkdóma sé mismunað á grundvelli sjúkdóms. Við þekkjum það í gegnum tíðina að það hafa verið talsvert miklir fordómar gagnvart þessum sjúkdómi. Það er auðvitað staðan og það er líka mjög merkilegt að hugsa til þess þegar við förum í marga áratugi aftur í tímann, t.d. áður en AA-samtökin urðu til, að þá voru bara engin bjargráð til fyrir fólk sem var með þennan sjúkdóm. Þá var oft talað um drykkjusýki og menn stóðu algerlega ráðþrota gagnvart þessu. Það er síðan misjafnt hvaða leiðir fólk velur sér í lífinu til að takast á við þetta. Eins og ég sagði áðan verður löggjöfin í landinu auðvitað að endurspegla það sem við vitum best í krafti nýjustu þekkingar og þeirrar framþróunar sem hefur orðið í meðhöndlun á þessum tiltekna sjúkdómi.
Eins og kemur fram í lögunum og í starfsemi lífeyrissjóða er greiðsla iðgjalds í lífeyrissjóð skylda alls vinnandi fólks og ekki eru gerðar neinar undantekningar á þeirri skyldu. Hún fellur ekki niður þótt greiðandi iðgjalds stríði við fíknisjúkdóm. Það er líka tiltekið í greinargerðinni:
„Ótal sjúkdómar herja á fólk og enginn þeirra talinn slíks eðlis að réttlætanlegt sé að skerða framreikning örorkubóta. Þá verður að horfa til þess að samkvæmt greiningarviðmiðum sem embætti landlæknis styðst við getur fíkn í aðra vímugjafa en áfengi, lyf og vímuefni talist til fíknisjúkdóma eða andlags þeirra.“
Þegar við tölum um fíkn er það auðvitað talsvert víðara hugtak en svo, fíkn getur verið annað en bara fíkn í vímugjafa. Það hafa verið höfðuð fyrir dómstólum mál þar sem átti að láta reyna á lögmæti ákvæðis um sjálfskaparvíti. Hér stendur hnífurinn kannski í kúnni því að í þessum málum hefur alltaf verið gerð dómsátt og því hefur ekki komið til mats dómstóla um þetta tiltekna álitaefni. Það eru þó vísbendingar í hæstaréttardómi frá 2017 þar sem fjallað var um heimild lífeyrissjóða til skerðingar og þar segir, með leyfi forseta:
„Samkvæmt framansögðu verður að játa lífeyrissjóðum, þeirra á meðal stefnda, verulegu svigrúmi til að setja reglur um frekari skilyrði fyrir greiðslu örorkulífeyris en mælt er fyrir um í lögum nr. 129/1997, að því tilskildu að slík skilyrði séu málefnaleg og jafnræðis sé gætt gagnvart sjóðfélögum.“
Þá er vísað í annan hæstaréttardóm. Og svo segir áfram, með leyfi forseta:
„Fallist er á með héraðsdómi að sú regla, sem er að finna í grein 16.4. í samþykktum stefnda þar sem kveðið er á um að örorkulífeyri skuli ekki greiða lengur aftur í tímann en tvö ár frá því að umsókn barst honum, styðjist við málefnaleg rök og þar sé jafnframt gætt meðalhófs gagnvart sjóðfélögum, án þess að séð verði að þeim sé mismunað á nokkurn hátt. Samkvæmt þessu er staðfest sú niðurstaða héraðsdóms að reglan hafi fullnægjandi lagastoð.“
Heilbrigð skynsemi segir að mismunun sú sem birtist í ákvæðinu um sjálfskaparvíti teljist vart vera mismunun á málefnalegum grunni og það er uppleggið sem er hér að baki. Það þýðir auðvitað að fólk sem hefur þurft að glíma við fíknisjúkdóma sökum fíknar í áfengi, lyf eða fíkniefni stendur verr að vígi en aðrir í sambærilegri stöðu.
Mig langar svo að nefna eitt sem við tæpum aðeins á í greinargerðinni, þ.e. að þetta tiltekna ákvæði getur auðvitað leitt til þess að fólk veigri sér við því að leita aðstoðar vegna mjög alvarlegs sjúkdóms af ótta við að skjalfesta vanda sinn og verða þar með af framreikningi. Það varðar gríðarlega miklu fyrir samfélagið allt að lög og reglur greiði fyrir því að fólk leiti sér aðstoðar vegna sjúkdómsástands eða séu a.m.k. ekki hindrun í þeirri viðleitni fólks að sækja sér bata. Mér finnst þetta vera gríðarlega veigamikið atriði, bæði í þessu tiltekna máli og svo bara almennt; það mega ekki vera samfélagslegar girðingar, og allra síst í lögum, sem gera það að verkum að fólk veigri sér við að leita sér hjálpar. Fyrir er það nógu erfitt fyrir fólk, sem oft er ekki bara að berjast við fordóma í samfélaginu heldur líka að berjast við eigin fordóma gagnvart þessum tiltekna sjúkdómi. Ef við erum með einhverjar girðingar í lögum sem gerir það að verkum að fólk leitar sér ekki aðstoðar þá erum við sem samfélag á mjög vondum stað.
Ég var að nefna hér áðan þær vísbendingar sem eru í hæstaréttardómi um þetta. Þetta er auðvitað bara ákveðið sanngirnissjónarmið og lífeyrissjóðirnir hafa notað þetta ákvæði til að koma í veg fyrir að fólk með fíknisjúkdóma njóti sömu réttinda og aðrir, það þekkist. Það mál sem hér er lagt fram hefur verið mikið baráttumál hjá Öryrkjabandalaginu og þar hafa menn haft horn í síðu þessa ákvæðis. Þar hefur t.d. verið vísað til dómsmáls sem höfðað var gegn Gildi lífeyrissjóði vegna þess að einstaklingi var synjað um þennan framreikning sem hér er undir. Þar var afstaða lífeyrissjóðsins, um synjun framreikninga, m.a. byggð á fullyrðingum trúnaðarlæknis sem var að tilgreina orkutapið sem þarna var til umræðu og í niðurstöðu trúnaðarlæknis segir að um hafi verið að ræða:
„… blandaða vímuefnaneyslu, sem leitt hefur til ýmiss konar slysaáverka með þeim afleiðingum að maðurinn býr við langvarandi verki frá stoðkerfi og andlega vanlíðan. Þar er um að ræða sjálfskaparvíti í skilningi samþykktar sjóðsins og laga. Ekki þykir ástæða til að boða manninn í viðtal og skoðun þar sem harla ólíklegt má telja að slík athugun breyti niðurstöðu þessa mats og þar sem læknisfræðileg gögn málsins þykja fullnægjandi.“
Í þessari skoðun þessa læknis og þessari niðurstöðu trúnaðarlæknisins — ég ætla bara að leyfa mér að fella þau orð hér að þarna örli talsvert á annaðhvort miklu þekkingarleysi á þeim vanda sem um er að ræða eða þá bara hreinum og klárum fordómum. Ég ætla bara að leyfa mér að nota þau orð. Á þessu var byggt af hálfu lífeyrissjóðsins og þá var höfðað mál en því máli lauk síðan með dómsátt og þar var byggt á nýju mati hjá Gildi lífeyrissjóði. Þar var komist að þeirri niðurstöðu að við ákvörðun sjóðsins um að synja stefnanda um rétt framreiknings örorkulífeyris hafi ekki legið fyrir fullnægjandi gögn því til sönnunar að áverkar stefnanda sem taldir eru meginorsök örorku hans hafi orsakast af ofneyslu áfengis eða fíkniefna eins og ákvörðun hans byggði þó á og því hafi ákvörðunina skort lögmæta stoð.
Það sem er hér undir af hálfu Öryrkjabandalagsins, sem hefur verið að berjast fyrir því að þetta falli á brott, er að í raun er um hreint og klárt mannréttindabrot að ræða og brot á stjórnarskrá, brot á þeirri grundvallarreglu í samfélaginu að við eigum öll að vera jöfn. Eins og ég segi, lífeyrissjóðir hafa gjarnan samið sig frá álitaefnum um þetta með dómsátt sem þýðir auðvitað að dómstólar hafa ekki kveðið á um sanngirnina á bak við það að þetta ákvæði sé inni. Þetta er sem sagt tímaskekkja, svo að ég nefni það orð aftur, sem raunverulega getur komið í veg fyrir að fólk sem þarf á hjálp að halda leiti sér aðstoðar og leiti sér hjálpar. Það er svo einfalt.
Eins og ég nefndi hér áðan þá var það þannig að við lögðum þetta fram nokkrir þingmenn á síðasta löggjafarþingi. Efnahags- og viðskiptanefnd fékk málið til umfjöllunar og óskaði eftir umsögnum og fimm umsagnir bárust. Ég ætla aðeins að fara í gegnum þær af því að það er auðvitað mjög áhugavert upp á framhaldið. ÖBÍ réttindasamtök komu fram með umsögn og hvöttu til þess að þetta yrði samþykkt og í umsögninni segir:
„ÖBÍ hefur til langs tíma talað fyrir brottfalli skilyrðis 2. mgr. 15. gr. laga nr. 129/1997 um hið svokallaða „sjálfskaparvíti“. Tekið er undir þau sjónarmið sem rakin eru í greinargerð með frumvarpinu. Löngu tímabært er að löggjöf um þetta efni taki mið af vísindalegum rannsóknum og nútímaviðhorfum til fíknisjúkdóma. ÖBÍ tekur einnig undir að telja verði álitaefni hvort ákvæðið í núverandi mynd standist jafnræðisreglu stjórnarskrárinnar sem og önnur ákvæði hennar.“
Þetta var sem sagt umsögn ÖBÍ sem kom á síðasta þingi. Alþýðusamband Íslands kom auðvitað líka með umsögn við þetta mál og styður frumvarpið og leggur til að það verði að lögum. Hér segir, með leyfi forseta:
„Ákvæði sem frumvarpið leggur til að falli úr lögunum samræmist ekki hvernig litið er til fíknisjúkdóma í dag. Rökstuðningur frumvarpsins fer ágætlega yfir það. Viðbúið er að kallað verði eftir mati á áhrifum breytinga á stöðu lífeyrissjóða en með sömu rökum mætti rýna hin ýmsu atriði sem hafa áhrif á heilsufar en fyrirgera ekki rétti á framreikningi örorkulífeyris. Alþýðusamband Íslands telur frumvarpið tímabæra uppfærslu á lögum um lífeyrissjóði og styður framgang þess.“
Það kom líka umsögn frá BSRB og þar voru menn svo sem ekkert að flækja málin. Það kemur bara hreint og klárt fram í stuttri kjarnyrtri umsögn að BSRB styður við efni þess og hvetur til þess að það verði samþykkt.
Einnig barst umsögn frá Landssamtökum lífeyrissjóða, sem var kannski svolítið ítarlegri en hinar, sem er auðvitað ekkert undarlegt. Þar kemur fram, með leyfi forseta:
„Eins og afar ítarlega er rakið í greinargerð sem fylgir frumvarpinu má fullyrða að ákvæði þetta sé barn síns tíma þar sem ekki hafi verið til staðar sú þekking sem nú er að baki umræddum fíknisjúkdómum. Ákvæðið hefur ítrekað komið til tals og þykir afar umdeilt og taka Landssamtök lífeyrissjóða heilshugar undir það að ákvæðið þarfnast endurskoðunar.“
Síðar í umsögninni segir, með leyfi forseta:
„Landssamtök lífeyrissjóða leggja því ríka áherslu á að fram fari ítarleg greining og stefnumótun til framtíðar á hlutverki lífeyrissjóða við greiðslur örorkulífeyris og samspili þeirra greiðslna við örorku- og endurhæfingargreiðslur almannatrygginga.“
Bent er á að frumvarp þetta taki aðeins á einum þeim þætti sem þarfnist endurskoðunar en þar sé af ýmsu að taka og mikilvægt að fram fari kostnaðargreining á breytingum sem lagðar séu fram en eins og fyrr greini séu það ákveðnir sjóðir sem beri þungar byrðar þegar kemur að greiðslum örorkulífeyris. Lífeyrissjóðirnir taka hins vegar undir að þetta ákvæði sé barn síns tíma en eru kannski svolítið að víkka út sína skoðun á því hvað þurfi að vera undir þegar menn eru að meta þetta allt saman heildstætt.
Einnig barst umsögn frá Vilhjálmi Bjarnasyni, fyrrum þingmanni Sjálfstæðisflokksins, sem þekkir lífeyrismálin mjög vel. Hann kom með góða umsögn, gagnrýna umsögn og segir hér, með leyfi forseta:
„Frumvarpið miðar að því að skerða réttindi sjóðfélaga, sem sjóðfélagar hafa aflað sér í góðri trú og að teknu tilliti til hæfilegrar samtryggingar vegna veikinda og slysa, sem enginn kýs sér.“
Áfram segir, með leyfi forseta:
„Með frumvarpinu á að verðlauna „sjálfskaparvíti“ án þess að áhrif af breytingu séu metin.“
Þetta er kannski sú umsögn sem er gagnrýnust á þetta tiltekna mál. En auðvitað er þetta eitt af því sem nefndin hlýtur að taka til skoðunar og vega og meta og ég vona svo sannarlega að það verði gert. Ég staldra samt aðeins við orðalagið „að verðlauna sjálfskaparvíti“. Þetta er ekki nákvæmlega orðalagið sem ég myndi nota þegar ég er að tala um þetta mál en þetta er kannski hluti af því sem við er að eiga í þessu.
Þetta voru umsagnirnar sem bárust síðast. Ég vona að málið fái framgang í nefndinni og verði tekið þar til umfjöllunar þar sem hægt er að rýna svolítið vel hvað er þarna að baki. Mig langar að lokum að segja að það er auðvitað þannig að nú situr ríkisstjórn sem hafði það sem eitt af forgangsmálum sínum að taka betur utan um þann hóp sem þarna er undir. Eitt af því var að koma í veg fyrir að meðferðarstofnanir lokuðu síðasta sumar og það fannst mér stórt og mikilvægt skref. Það styttir biðlista til lengri tíma en það eru líka sterk skilaboð fólgin í því. Þetta var í sjálfu sér ekki dýr framkvæmd en þetta eru skilaboð um að það eigi að taka betur utan um þann hóp sem hér er undir. Það gengur auðvitað ekki að þeir sem eru að meðhöndla fólk með fíknisjúkdóma og halda utan um það þurfi að loka yfir sumartímann. Það hefur gerst hjá SÁÁ og það hefur reyndar líka gerst hjá Stuðlum og mögulega á fleiri stöðum, en þá erum við að kippa úr sambandi ákveðnu elementi sem verður að vera virkt árið um kring í íslensku samfélagi. Síðan er það okkar hlutverk í fjárlögum að tryggja að þær meðferðarstöðvar sem sækja sér fé til opinberra aðila, til ríkisins í þessu tilviki, til að standa straum af sinni starfsemi — að við sinnum því með glæsibrag.
Við erum stundum að ræða um þennan sjúkdóm hér í þessum sal og það er auðvitað oft gríðarlega mikil umræða um þetta í samfélaginu. Umræðan er einmitt svo mikil vegna þess að afleiðingar sjúkdómsins eru oft svo rosalega sýnilegar og dramatískar og oft á tíðum algerlega hörmulegar. Það fangar auðvitað athygli fólks. En ég vil í því samhengi segja að ég hef aldrei upplifað neitt annað í þessum sal en mikinn vilja allra flokka, og það var líka þannig á síðasta kjörtímabili, til að gera betur. Menn hafa ekkert endilega verið nákvæmlega sammála um hvaða leiðir eigi að fara, hvort gera eigi hlutina svona eða hinsegin, gefa þarna í, breyta áherslum — við getum nefnt alls konar svona dæmi því til stuðnings. En vilji flokka og vilji þingmanna til að gera betur hefur alltaf verið mjög skýr. Mér finnst að það sé okkar hlutverk hér í þessum sal að fanga þann vilja og þess vegna er þetta þingmál lagt fram. Það er skref í rétta átt sem ég held að við ættum öll að geta sameinast um.
Nú á allra síðustu dögum hefur talsvert mikið verið talað um börn og ungmenni sem eru með mjög alvarlegan fíknivanda og jafnvel annan vanda meðfram. Við höfum verið að sjá það í fjölmiðlum síðustu daga að foreldrar eru stundum settir í þá stöðu — við höfum einmitt verið að vanrækja þennan málaflokk langt aftur í tímann. Ég vil meina að þetta sé ekki spurning um einhverja eina ríkisstjórn eða tiltekna flokka umfram aðra, við höfum bara ekki verið nægjanlega mikið með augun á boltanum í þessu. Til þess að koma börnunum sínum í skjól eru menn jafnvel farnir að leita til meðferðarstöðva í fjarlægum heimsálfum og eru nokkur dæmi þess að fólk hafi sent börnin sín til Suður-Afríku í meðferðarstöð eða meðferðarstarf sem þar er. Ég veit í sjálfu sér ekki mikið um það meðferðarstarf. Ég hef verið í samskiptum við foreldra sem hafa farið með börnin sín þangað og er mjög vel látið af þeirri vinnu sem þar er unnin. Það er út af fyrir sig jákvætt og ekki ætla ég að hallmæla fólki sem grípur til drastískra aðgerða til að vernda börnin sín og fer jafn vel með þau langt í skjól til að koma þeim úr umhverfi sem er kannski ógn fyrir þau. En auðvitað er það þannig í stóra samhenginu á Íslandi að foreldrar þurfa í það minnsta að geta átt val um það hvort börnin þeirra séu hér í einhvers konar meðferð eða aðstoð eða hvort þau vilji leita til útlanda. Þarna höfum við á undanförnum áratugum ekki gert nægjanlega vel. Það er auðvitað þannig að það á ekki að stilla foreldrum eða börnum upp við vegg þannig að fólk þurfi að leggjast í langt ferðalag og borga dýra meðferð, jafnvel þannig að fleiri milljónir í venjulegu heimilisbókhaldi séu undir, til þess að börnin fái skjól. Þetta finnst foreldrum oft að þurfi að gera til þess að koma börnunum í hæfilega fjarlægð frá gömlum neyslufélögum og annað, en í það minnsta verður að vera val. Við getum ekki haft það þannig að hér séu engin úrræði og fólk neyðist hreinlega til að grípa til þessa. Það er held ég ekki samfélag sem neitt okkar hér í þessum sal vill sjá. Við sjáum það t.d. hér í þinginu að í gær var verið að ræða mjög gott þingmál, sem hefur líka oftar en einu sinni verið flutt hér í þessum sal, frá hv. þm. Ingibjörgu Isaksen, um það að skoða almennilega aðdraganda sjálfsvíga og óhappaeitrana. Þetta er enn eitt dæmið um það að þingmenn séu að hugsa um þessi mál í mörgum boxum og mörgum hólfum. Ég náði ekki að vera þátttakandi í umræðunni í gær en hef svo sem verið það áður. Mér hefur alltaf fundist vera mikill samhljómur um það að gera einmitt betur þarna. Þann samhljóm eigum við að virkja og ég vil meina að það þingmál sem ég er hér að mæla fyrir sé ein varðan á þeirri löngu leið.
Ég vonast eftir því að þetta mál fái vinnslu í efnahags- og viðskiptanefnd og að kallað verði eftir umsögnum og að umsagnir verði jákvæðar og að sérstaklega verði tekið tillit til sjónarmiða eins og t.d. þingmaðurinn fyrrverandi, Vilhjálmur Bjarnason, nefnir í umsögn sinni. Þetta þarfnast ofureinfaldlega góðrar vinnu og þá vinnu eigum við að fara í að mínu mati í efnahags- og viðskiptanefnd. Ég ætla að láta þessu lokið hér. Þetta er auðvitað risastór umræða um fíknivandann og við getum farið með hann í allar mögulegar áttir en þetta er eitt af þeim skrefum sem við getum tekið tiltölulega fyrirhafnarlítið til þess að fólk sem er í þessum mikla vanda eigi betra skjól inni í okkar kerfum.