skyldutrygging lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða.
Herra forseti. Ég ætla að byrja á því að þakka hv. þm. Sigmari Guðmundssyni fyrir að vera fyrsti flutningsmaður á þessu frumvarpi. Ég er meðflutningsmaður og styð þetta mál heils hugar enda kann að vera að um sé að ræða brot gegn tilteknum ákvæðum stjórnarskrár lýðveldisins Íslands eða ákvæði um jafnræði þegnanna. Ég held að það sé alveg ljóst að almennt séð lítum við á fíkn sem sjúkdóm og að mínu mati er fráleitt að vísa til hennar sem sjálfskaparvítis. Það eru væntanlega til ýmis sjálfskaparvíti ef út í það er farið og þá er sérstakt að tiltaka sérstaklega þetta sjálfskaparvíti sem ætti að rýra rétt manns til örorkulífeyris.
Hv. þm. Sigmar Guðmundsson vísaði hér í ræðu sinni til hæstaréttardóms sem vísaði til reglna lífeyrissjóðs þó að dómurinn, eins og ég skildi hv. þingmann, byggði ekki á ákvæðinu en vísað var til þess í dóminum. Síðan er líka þessi dómur þar sem raunverulega er sýknað, þ.e. það var ekki byggt á mati læknis sem taldi sig ekki þurfa að sjá sjúklinginn til að geta metið það að hann ætti ekki að fá örorkulífeyri á grundvelli sjálfskaparvítis. Hve oft þetta hefur verið notað er óvíst. Það væri áhugavert að fá að vita hve oft það hefur verið gert og eins og vísað var til í umræðu áðan þá kann að vera að slíkar upplýsingar geti komið til álita í vinnu nefndarinnar. Sjálfsagt er það þannig að oftast er samið utan dómstóla um þetta eða jafnvel með dómsátt. Jafnvel þó að það séu ekki mörg dæmi um að þessu sé beitt þá er sannarlega ekki hægt að vísa til þess að þetta ákvæði sé úr gildi fallið vegna fyrnsku.
En allt að einu, hvað sem við segjum um þetta þá finnst þeim sem hér stendur að þá sé a.m.k. kominn tími til að fella ákvæðið úr lögunum og gera þetta alveg skýrt, að þessi sjúkdómur verði ekki lagður frekar til grundvallar því að fólk fái ekki örorkulífeyri frekar en aðrir. Ég held að það sé mikilvægt að litið sé á fíknisjúkdóma eins og alla aðra sjúkdóma og að ekki sé gerður greinarmunur þar á.
Að lokum ætla ég bara að þakka sérstaklega fyrir þessa umræðu. Hv. þingmaður var með fínustu ræðu og fór vel yfir þetta mál og jafnvel var farið víðar yfir málefni sem varða fíknisjúkdóma og þá fíkn sem fullorðnir og jafnvel börn búa við.