157. löggjafarþing — 15. fundur,  9. okt. 2025.

vegalög.

66. mál
[16:29]
Horfa

Sigurjón Þórðarson (Flf) (andsvar):

Frú forseti. Ég vil nú byrja á því að taka undir markmið þessa frumvarps en ég get lítið annað gert en það, því að sjálfur hef ég reynt að einmitt hvetja til þess að það yrði settur starfshópur um ferjur. Sem þingmaður Norðausturkjördæmis horfi ég auðvitað einkum til leiðanna í Eyjafirði, Sævars og Sæfara, sem sigla til perlu Eyjafjarðar, Hríseyjar, og svo til Grímseyjar. Það þarf að setja skerpu eða fókus á þessi mál, það er alveg ljóst. Þá eru það ekki bara ferjurnar og siglingarnar því þetta eru orðnar ferðamannaleiðir og því þarf að horfa líka til aðstöðunnar í landi þannig að þetta sé sómasamlegt, að snyrtingar séu til staðar og upplýsingar til farþega, þannig að horft sé á þetta í heild sinni út frá ferðaþjónustu, íbúunum og atvinnustarfsemi annarri. Auðvitað er hæstv. innviðaráðherra þó þröngur stakkur skorinn þar sem hann tók við búi þar sem innviðirnir lágu undir skemmdum. Þjóðvegirnir allir eru að toga í peninga og svo þegar maður var að hlýða á umræðu um kílómetragjaldið þá var nú ekki mikill vilji hjá öllum þingmönnum, vægast sagt, að bæta í. Þannig að ég tel þetta vera gott mál vegna þess að þetta setur þá fókusinn á þessa starfsemi og á ferjur og siglingar og ég er áhugamaður um skip og báta og þetta má ekki verða út undan. Það eru margir að togast á um aurana og það er hætt við því jafnvel að þessi flutningsmáti geti orðið undir og við verðum að tryggja að svo verði ekki.