157. löggjafarþing — 15. fundur,  9. okt. 2025.

vegalög.

66. mál
[16:32]
Horfa

Flm. (Karl Gauti Hjaltason) (M) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Sigurjóni Þórðarsyni fyrir hans innlegg hér. Það er gott að hv. þingmaður sé í stjórnarliðinu og geti kannski lagt þessu lið. Það er alveg rétt. Við höfum verið að horfa á síðustu fjöldamörg ár, alveg greinilega, að það er alveg augljóst að síðustu tíu, jafnvel 20 árin hafa öll málefni hvað varðar ferjur legið í láginni. Þeim hefur verið leyft að eldast fram úr hófi. Við erum að bjóða upp á skip sem eru ekki fullboðleg á þessum leiðum. Ég er að tala um Hrísey, ég er að tala um Grímsey, Flatey og ég er að tala um Vestmannaeyjar. Ég er að tala um allar þessar leiðir. Þetta hefur verið afgangsstærð, frú forseti, afgangsstærð og ég held að með samþykkt þessa frumvarps, hugsanlega með einhverjum breytingum og lagfæringum, þá beinum við sjónum okkar betur að þessum samgöngumáta sem hefur verið algerlega afskiptur að mínu mati. Ég þekki best til Herjólfs og þar er meira að segja skipið, sem ég ætla nú ekki að segja að sé nýkomið — það eru komin einhver tíu ár. Undir venjulegum kringumstæðum ættu menn nú þegar að vera byrjaðir að huga að því að láta smíða nýtt skip til að taka við. Svo örar eru breytingarnar og þetta úreldist hratt og við verðum auðvitað að bjóða farþegum, sem og síauknum ferðamannastraumi, upp á sómasamlega veru um borð í þessum ferjum þar sem þeir ferðast um landið okkar. Þetta er kannski svipað með þjóðvegina, það er varla boðlegt að keyra suma þeirra og það er það sama með ferjurnar. Þetta myndi beina sjónum okkar betur að þessum þætti samgangna.