157. löggjafarþing — 15. fundur,  9. okt. 2025.

vegalög.

66. mál
[16:36]
Horfa

Flm. (Karl Gauti Hjaltason) (M) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Sigurjóni Þórðarsyni fyrir hans innlegg. Lögsaga í kringum eyjarnar, já, ég man nú eftir því að það kom margoft upp að gárungarnir í Eyjum vildu nú helst bara stofna sjálfstætt ríki. Ég veit ekki hvort það er eitthvað í ætt við það, að við myndum bara stjórna okkur sjálf. Mönnum fannst nóg um oft á tíðum hvað ríkið seildist til áhrifa og skatttöku en lagði kannski lítið til baka. Menn hafa auðvitað misjafnar skoðanir á því. Maður heyrði það líka að þeir væru sífellt að heimta meira og meira þangað. En ég held að svona byggðir leggi gífurlega mikið til samfélagsins og ekki fer það minnkandi. Ég fullyrði það. Ekki fer það minnkandi. Atvinnulíf stendur með miklum blóma.

Ég ætla kannski að nota tímann fyrst ég er kominn aftur hérna upp og nefndi það ekki í minni ræðu. Ég hef alltaf horft á ferjusiglingar til Eyja með þeim hætti að það væri löngu kominn tími til að sigla með tveimur skipum fram og til baka yfir hásumarið. Þetta hefur auðvitað ekki mátt nefna vegna þess að menn eru alltaf að reyna að spara sig í heimtufrekjunni. En auðvitað er nægur ferðamannastraumur til þess yfir hásumarið, að það væru tvö skip sem sigldu hvort á móti öðru stanslaust yfir daginn. Enda er Herjólfur í dag á sumartíma algerlega sneisafullur hvað varðar bíla og oft hvað varðar farþega. Þannig að ég held að það sé löngu kominn tími til að menn horfi á þetta með opnum augum og ég held að þetta myndi bara efla atvinnulíf, ferðaþjónustu í Eyjum og auðvitað öryggi siglinga, vegna þess að ef annað bilar, eins og oft hefur komið fyrir, eða dettur út þá er þó eitt til að grípa í.