157. löggjafarþing — 15. fundur,  9. okt. 2025.

vegalög.

66. mál
[16:38]
Horfa

Ólafur Adolfsson (S) (andsvar):

Frú forseti. Ég vil byrja á að þakka hv. þm. Karli Gauta Hjaltasyni fyrir góða framsögu og í rauninni áhugavert mál. Þetta er mál sem varðar okkur að einhverju leyti í Norðvesturkjördæmi. Þar erum við nú með okkar perlu eins og Karl Gauti Hjaltason með sína á Suðurlandi. Þar höfum við Flatey og það er ferjuleið milli Stykkishólms, Flateyjar og Brjánslækjar sem þjónar sannarlega umferð um þetta svæði og er áhugaverð leið t.d. til þess að fara á milli suðurhluta Vestfjarða og Snæfellsness.

Ég er aðeins að velta fyrir mér, af því að hér hefur kannski ekki verið drepið á kostnaði; það er lauflétt spurning um hvort gert sé ráð fyrir að það sé einhver aukinn kostnaður við þetta frumvarp. Síðan langar mig til að nefna að við vorum fyrir stuttu í umhverfis- og samgöngunefnd í heimsókn hjá Vegagerðinni og þar fannst mér m.a. koma alveg skýrt fram að það væri ekki viðunandi staða að vera bara með eitt skip sem væri að sigla milli Vestmannaeyja og lands í ljósi þeirrar miklu umferðar sem þar er. Þá var kannski ekki verið að horfa á annað skip til að sigla til móts við hið fyrra en í raun þá frekar að horfa á hvað gerist ef núverandi Herjólfur bilar. Þá hefur verið gripið til þeirrar ferju sem hefur siglt á milli Stykkishólms, Flateyjar og Brjánslækjar með tilheyrandi áhrifum á þá leið. Spurningin til þingmannsins er þá varðandi kostnað, hvort þetta feli í sér einhvern viðbótarkostnað og hvort hann sjái einhver tækifæri í því að vera með samnýtingu skipa á þessum leiðum.