vegalög.
Frú forseti. Ég þakka þingmanninum enn og aftur fyrir þessar hugleiðingar. Jú, jú, breytingar á gjaldskrá, það yrði kannski einhvers konar reikniregla gerð í sambandi við þjóðferjuleiðirnar ef úr yrði, þegar menn settu fram þessa áætlun, hversu hátt gjald ætti að vera og þá miðað við hugsanlega lengd eða eitthvað slíkt, lengd ferðar og í kílómetrum talið. Þá gætu menn kannski sest niður og farið að tala um þetta á einhverjum skynsamlegum nótum hvað varðar gjaldtöku af farþegum. Þetta myndi ábyggilega á einhverjum árum taka einhverjum breytingum og þá í skynsamlega átt.
Við vorum að tala um tvö skip og eitt skip. Eins og verið hefur undanfarin ár og til langs tíma þá höfum við ekki sem þjóð verið í færum til að sinna þessum byggðum. Það er augljóst öllum sem búa á þessum eyjum, alla vega þeim sem ég þekki til, að við höfum sem samfélag ekki getað sinnt þessu svo sómi sé að. Ég hef heyrt þetta í Breiðafirðinum. Ég hef heyrt þetta í Vestmannaeyjum og ég held að ég hafi einnig heyrt þetta um þessar tvær eyjar í Eyjafirði. Við erum að bjóða upp á gömul skip sem ekki geta sinnt þessu þannig að vel sé að mati íbúa og atvinnulífs á þessum stöðum, þannig að það er alveg kominn tími til. Ég fagna auðvitað þessari umræðu þó að hún hafi kannski farið aðeins út fyrir efni frumvarpsins. Við þurfum auðvitað að ræða þetta miklu betur og taka þessa umræðu hér á Alþingi en ekki bara að þetta birtist í einhverjum umkvörtunum í fjölmiðlum þegar á bjátar heldur að taka þessa umræðu áður en menn lenda í skrúfunni með þessi skip og þessar ferðir.