Stefna ríkisstjórnar í heilbrigðismálum.
Virðulegi forseti. Ég beini hér fyrirspurn til hæstv. forsætisráðherra, formanns Samfylkingarinnar, verkstjóra ríkisstjórnarinnar, um stefnu ríkisstjórnarinnar í heilbrigðismálum. Við í Framsókn aðhyllumst að nýta alla þá krafta sem eru í íslensku heilbrigðiskerfi og gerðum það, held ég, með gríðarlega sterkum og áhrifamiklum hætti í tíð fyrrverandi heilbrigðisráðherra, Willums Þórs Þórssonar. Það er vel að Samfylkingin tók upp þá stefnu í sínu plani um heilbrigðismál að öllu leyti þar sem stóð meira og minna allt það sem Willum var búinn að gera eða var að gera. Þetta var sem sagt fyrir kosningar en núna er staðan þessi: Ríkisstjórnin hefur ákveðið að hækka lyfjakostnað venjulegs fólks um 450 milljónir undir því yfirskini að vera að fjölga þrepum. Við munum öll eftir Janusi, NEET-hópnum sem ríkisstjórnin og heilbrigðisráðherra lagði niður án þess að það væru önnur úrræði til staðar fyrir þann viðkvæma hóp. Við höfum séð frumvarp í samráðsgátt frá heilbrigðisráðherra sem hefur ekki vakið hrifningu Læknafélags Reykjavíkur, Félags sjúkraþjálfara, Tannlæknafélagsins, sálfræðinga, ljósmæðra og talmeinafræðinga, svo ekki sé fastar að orði kveðið. Og við höfum séð í fjárlögum að Ljósið, sem tekur á móti 1.600 manns og hefur vaxið og verið gríðarlega mikilvægur þáttur í endurhæfingu þeirra sem hafa farið í gegnum krabbameinsmeðferð, byggt upp m.a. starfsemi úti á landi, verður nú fyrir niðurskurði upp á 40%, 200 milljónir, í fjárlögum þessarar ríkisstjórnar. Allt eru þetta verkefni sem eru ekki beint hjá ríkinu heldur í hinu blandaða kerfi.(Forseti hringir.)
Þess vegna spyr ég: Er það stefna ríkisstjórnarinnar að færa öll verkefni frá hinum almenna markaði þar sem eru einkareknar stöðvar eða félagsstöðvar þar sem starfa sjálfboðaliðar til ríkisins og skera niður hina? Er það stefna ríkisstjórnarinnar?