157. löggjafarþing — 16. fundur,  14. okt. 2025.

Stefna ríkisstjórnar í heilbrigðismálum.

[14:01]
Horfa

forsætisráðherra (Kristrún Frostadóttir) (Sf):

Frú forseti. Hv. þingmaður á að vita vel að þegar ég er að ræða um Ríkisendurskoðun þá er ég að tala um skýrslu sem varðar tugmilljarða ef ekki hundruð milljarða batterí sem er Sjúkratryggingar Íslands, ekki Ljósið. (SIJ: Það eru fleiri skýrslur. )Það sem hv. þingmaður á líka vita er að það framlag sem er að falla niður til Ljóssins er framlag sem var ekki veitt af síðustu ríkisstjórn. Það var veitt af fjárlaganefnd, af fjárlaganefnd fyrir síðustu kosningar, af Alþingi, ekki að tillögu ríkisstjórnarinnar. Þessi salur tók sig saman og veitti það einskiptisframlag sem hv. þingmaður og aðrir eiga að vita að ef það er ekki endurnýjað þá fellur það niður. Þetta er ekki fjárveiting sem kom ár frá ári frá síðustu ríkisstjórn heldur er einskiptisframlag. Ég ætla ekki að taka fyrir hendur hv. fjárlaganefndar Alþingis ef vilji er fyrir frekari styrkingu. En ég vek bara athygli á því að það er margt sem þarf að gera betur í heilbrigðismálum. Við erum meðvituð um það eftir óstjórn síðustu ára að það þarf að fara betur með fjármagn en þetta gerum við til að styrkja þjónustuna þar sem raunverulega er þörf á því (Forseti hringir.) og eftirlit með opinberu skattfé er fullkomlega eðlilegt í lýðræðisríki.