Íslenskt mál og Ríkisútvarpið.
Virðulegur forseti. Fyrst vil ég segja að það er verkefni inni í ráðuneytinu er lýtur að því að Ríkisútvarpið hugi betur að þeim fjármunum sem við veitum því og sýni aðhald. Hvort þetta er rétta tillagan eða ekki, það er ég ekki viss um.
Við hv. þingmaður höfum áður átt samtal af þessum toga þar sem hv. þingmaður setti út á það að Ríkisútvarpið væri að birta litla fréttaskýringarþætti eða upplýsingar á ensku og pólsku. Í þessu máli er því til að svara að íslenskt samfélag hefur í talsverðan tíma núna reitt sig á erlent vinnuafl og hér búa tugir þúsunda einstaklinga sem eru í styttri eða lengri tíma hluti af okkar samfélagi, hafa haldið uppi hagvexti, af því að eins og hv. þingmaður veit hefur hagvöxtur síðustu fimm ára ekki aukist per mann heldur bara vegna fjölda þess vinnuafls sem komið hefur til viðbótar inn á vinnumarkaðinn. Þetta fólk hefur skyldur gagnvart íslensku samfélagi. Þetta fólk á líka sín réttindi og almannaútvarp eins og Ríkisútvarpið væri að bregðast sínum skyldum ef það kæmi ekki lágmarksskilaboðum á framfæri og að einhverju leyti á móti við þennan mikilvæga hóp. Ég er hins vegar tilbúinn til þess að setjast niður með hv. þingmönnum og hverjum öðrum af ykkur sem er og ræða hvernig við eigum að standa vörð um íslenskuna og það erum við að gera og ég get farið yfir það í seinna andsvari ef það er vilji til þess.