157. löggjafarþing — 16. fundur,  14. okt. 2025.

Svör ráðherra í óundirbúnum fyrirspurnatíma og viðbrögð forseta.

[14:18]
Horfa

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson (M):

Frú forseti. Þessi athugasemd yðar er alveg sanngjörn en ég myndi um leið vilja hvetja hæstv. forseta til að minna hæstv. ráðherra á að hlutverk þeirra hér er að svara spurningum sem fyrir þá eru lagðar. Ef þessi liður í þingstörfunum á eingöngu að snúast um það að ráðherrar hafi tækifæri til að koma hér upp og ræða eitthvað allt annað en þeir eru spurðir um og viljandi sleppa því að svara spurningunni, þá er það til lítils gagns. Þá er hætt við því að menn bregðist við með því að ítreka spurningar sínar til að reyna að kalla fram svör. Ég tel því að lausnin á því sem hæstv. forseti hafði orð á hér áðan sé sú að um leið hugi hæstv. forseti að því að minna hæstv. ráðherra á að svara spurningum í óundirbúnum fyrirspurnatímum.