Svör ráðherra í óundirbúnum fyrirspurnatíma og viðbrögð forseta.
Virðulegur forseti. Ég tek ábendingum yðar um framíköllin. Ég vil að vísu bera hönd fyrir höfuð mér að því marki að ég var með örstutt innskot til þess að brýna það einmitt fyrir hæstv. ráðherra að koma sér að efninu í sambandi við það hvort hann væri sammála tiltekinni yfirlýsingu eður ei. Þetta svar fékkst ekki. Þess vegna ítrekaði ég stuttlega, eins kurteislega og kostur var á, að ég vildi fá þessar upplýsingar fram. Þess vegna kom ég hér í pontu. Að því loknu fór hæstv. ráðherra hins vegar að spyrja mig nánar út í þetta og þá þurfti ég að svara því og þess vegna varð uppi samtal og varð uppi fótur og fit í einhverjum skilningi. Allt er það(Gripið fram í.) bagalegt en þetta samtal þarf auðvitað að halda áfram.