almannatryggingar.
Frú forseti. Ég veit ekki hvort ég sé að misskilja hæstv. ráðherra. Ég þakka vissulega fyrir svarið en það kemur nú hér fram hjá frumvarpinu að lögin eigi að öðlast gildi 1. janúar 2026. Það hlýtur að vera búið að reikna með kostnaði árið 2026 í tengslum við þessa hækkun og þess vegna var ég að vísa til fjárlaga 2026. Hæstv. ráðherra getur þá leiðrétt mig ef um misskilning er að ræða.
En aftur að frumvarpinu. Frumvarpið er á margan hátt jákvætt eins og ég hef komið að áður en í ljósi þess að verðbólga helst enn yfir markmiði Seðlabankans og vaxtastig er allt of hátt, telur hæstv. ráðherra, ef við tölum um forgangsröðun fjármuna, hvort það væri hreinlega einmitt betra, þó að við viljum bæta hag allra eldri borgara, og skynsamlegt í ljósi stöðunnar að ná tökum á verðbólgu og vöxtum? Við vitum að þetta mál er þensluhvetjandi. Væri hreinlega ráð að leggja til sérstakan stuðning til þeirra sem verst standa, eins og t.d. ungar barnafjölskyldur og eldri borgarar sem hvað verst standa? Það væri sérstakur stuðningur við þá í stað þess að leggja þetta á alla með tilheyrandi kostnaði (Forseti hringir.) og fresta þá frekar þessum aðgerðum til að ná tökum á verðbólgu og vöxtum.