157. löggjafarþing — 16. fundur,  14. okt. 2025.

almannatryggingar.

155. mál
[14:36]
Horfa

Guðrún Hafsteinsdóttir (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir framsögu sína varðandi þetta mál. Ég verð að segja að mér mislíkaði aðeins sú orðræða sem hæstv. ráðherra átti hér í pontu Alþingis. Vitaskuld viljum við öll hér sjá réttlátara samfélag. Að halda að það séu eingöngu þingmenn Flokks fólksins sem hafa staðið í stafni við að rétta kjör þeirra sem minna mega sín er mikill misskilningur. Ég ætla samt sem áður, virðulegi forseti, að leyfa mér það í þessari umræðu að hafa áhyggjur af því að þetta muni fela í sér sjálfvirka útgjaldaaukningu sem er varasamt fyrir ríkissjóð og verður miklu erfiðara fyrir þá sem halda utan um ríkiskassann að hafa stjórn á því.

Ég spurði hæstv. forsætisráðherra hér áðan í óundirbúnum fyrirspurnum um skoðun hennar á þessu frumvarpi, enda er hún reyndur hagfræðingur. Þá segir hún orðrétt: „Annað verður að bíða í staðinn.“ Við fengum að ræða það hér í umræðum áðan í óundirbúnum fyrirspurnum að það væru önnur verkefni sem þyrftu að bíða, eins og Ljósið eða eitthvað annað, af því að hér er verið að forgangsraða. Ég ætla sömuleiðis að gagnrýna mjög orð hæstv. húsnæðismálaráðherra þar sem hún segir hér að Samtök atvinnulífsins og önnur samtök beri ekki hag þeirra sem verst standa í þessu samfélagi fyrir brjósti. Það er ömurlegt að hlusta á svona orðræðu frá ráðherra í ríkisstjórn Íslands. Það er hreint út sagt ömurlegt. Hæstv. ráðherra veit það að vinnumarkaðurinn er keðja. Ég vil spyrja ráðherra hér út í það (Forseti hringir.) hvaða greiningar liggja að baki þessu frumvarpi.