157. löggjafarþing — 16. fundur,  14. okt. 2025.

almannatryggingar.

155. mál
[14:39]
Horfa

félags- og húsnæðismálaráðherra (Inga Sæland) (Flf) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir fyrirspurnina. Ég ætla í fyrsta lagi að leiðrétta hv. þingmann. Ég nefndi aldrei Samtök atvinnulífsins á nafn. Aldrei. Það er rangt. Ég talaði um hagsmunaaðila, hitt og þetta úti í bæ, sem væru í rauninni að láta sér á sama standa um það hvernig fólk sem væri að lepja dauðann úr skel hefði það yfir höfuð. Þannig að gagnrýni úr þeirri átt kæmi ekki á óvart. Hún hefur alltaf komið úr þeirri átt.

En burt séð frá því; ef þessi kjarabót ellilífeyris- og almannatryggingaþega almennt er of há að mati hv. þingmanns þá er það einfaldlega vegna þess að önnur laun í landinu hafa hækkað of mikið. Þetta er ekki sá hópur sem á að axla allar byrðarnar í samfélaginu. Þetta er ekki sá hópur sem endalaust má beygja bakið meira á. Þetta er hópurinn sem hefur gengið um með bogið bak og reynir samt sem áður að halda sinni reisn. Ég er stolt af því að standa hér.

Líka annað, hv. þm. Guðrún Hafsteinsdóttir. Mín orðræða er á mína ábyrgð og hvað hv. þingmanni mislíkar sem út úr mér dettur, það er á mína ábyrgð. Ég skora á hv. þingmann að haga sínu orðavali í takti við það sem henni þóknast sjálfri.