157. löggjafarþing — 16. fundur,  14. okt. 2025.

almannatryggingar.

155. mál
[14:43]
Horfa

Sigríður Á. Andersen (M) (andsvar):

Virðulegur forseti. Þetta frumvarp er hér í rauninni endurflutt. Það er þó þannig að það var hluti af stærra frumvarpi sem hefur ekki verið endurflutt enn en hluti af því frumvarpi, sem lýtur að þessum takmarkaða þætti hér, sem varðar tengingu bóta við þróun launavísitölu, liggur hér fyrir. Mér þykir svolítið skorta á í greinargerð smá yfirferð og umfjöllun um það, t.d. með hvaða hætti komið var til móts við sjónarmið þeirra sem veittu umsögn um málið á síðasta þingi. Vísað er til þess í samráðskafla frumvarpsins að það hafi verið horft til þeirra sjónarmiða sem fram koma í þeim umsögnum. Það væri gott að fá kannski eitthvert yfirlit hæstv. ráðherra á því að hvaða leyti það var gert vegna þess að mig rekur minni til þess að nánast allir umsagnaraðilar, utan hagsmunasamtaka öryrkja, hafi lagst gegn þessu, að þetta ákvæði næði fram að ganga. Á það var bent, m.a af ASÍ, að það væri mikilvægt að bætur myndu fylgja þróun lægstu launa en þó alls ekki launavísitölu. Á það var bent að breyting í þá veru gæti haft þveröfug og óæskileg áhrif á þróun bóta.

Mig langar því að vita að hvaða leyti tekið var tillit til þessara umsagna frá ASÍ, ég get nefnt það, og samtökum í atvinnulífinu og meira að segja sjálfu fjármálaráðuneytinu líka. Að hvaða leyti var tekið tillit til þessara ábendinga, kannski ekki síst ábendinga fjármálaráðuneytisins, að það lægi fyrir að það yrði afleiðing af þessu, næði þetta ákvæði fram að ganga, að sjálfvirkni kæmist á í aukningu ríkisútgjalda, sem fjármálaráðuneytið lagðist gegn?