157. löggjafarþing — 16. fundur,  14. okt. 2025.

almannatryggingar.

155. mál
[14:46]
Horfa

félags- og húsnæðismálaráðherra (Inga Sæland) (Flf) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir fyrirspurnina eða andsvarið. Í þessu frumvarpi er meira tillit tekið til áhrifa sem af frumvarpinu gætu orðið, og meira ígrundað um það, en í fyrra sinn. Það er rétt að það er búið að taka út úr þessu frumvarpi núna aldurstengdu örorkuuppbótina og ég man ekki alveg hvað hitt var. Það var tvennt. Það var eitthvað í sambandi við persónuupplýsingar, vinnslu persónuupplýsinga og annað slíkt, og það kemur bara inn mjög fljótlega í öðru frumvarpi. Að öðru leyti þá er þetta í raun í áttunda sinn sem ég mæli fyrir þessu frumvarpi. Ríkisstjórnin var einhuga um frumvarpið. Það á eftir að koma til framkvæmda. Það mun í rauninni bæta kjörin, jú, og markmiðið var hér að enginn ætti að fá útborgað minna en 450.000 kr. Það er búið að nudda mér upp úr því alllengi því að það var kosningaloforð Flokks fólksins í síðustu kosningabaráttu og við það kosningaloforð munum við standa og ríkisstjórnin í heild sinni mun standa við það kosningaloforð. Þegar mér, eins og kom fram á undan í fyrirspurn minni, láðist að nefna það þegar verið er að gera lítið úr því að hópur fólks skuli búa við fátækt, þá er staðreyndin sú að það eru um 2.000 eldri borgarar sem eru að fá útborgað um og undir 300.000 kr. á mánuði. Ef það er ekki fátækt þá veit ég ekki hvað það er, þannig að ég get ekki sagt neitt annað en að við munum axla ábyrgð á þessu frumvarpi. Við erum glöð með það. Við erum að bæta kjörin hjá fólkinu með því. Við erum að stöðva kjaragliðnun með frumvarpinu en við munum því miður ekki ná því að brúa það bil sem hefur þegar orðið á milli, þ.e. þessa kjaragliðnun sem nú þegar er komin í um 102.000 kr. á mánuði. Við getum ekki gert það, því miður, en ég vildi gjarnan (Forseti hringir.) hafa getað lokað því gati. Við ættum alla vega að stöðva kjaragliðnunina. Svo mikið er víst.