almannatryggingar.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir síðara andsvar. Að sjálfsögðu lagðist ráðuneytið yfir allar umsagnir með frumvarpinu en við erum bara ekki sammála því að það ruggi bátnum og við erum ekki sammála því að það að koma með að meðaltali 3–4 milljarða á ári til að tengja við launavísitöluna sé eitthvað sem við þurfum að hafa áhyggjur af. Við erum bara ekki sammála því. Við erum hins vegar alveg einróma um að þetta sé frumvarp sem er nauðsynlegt á þeim tímapunkti þegar við erum í rauninni að reyna að stöðva óafsakanlega áralanga þróun kjaragliðnunar sem hefur verið viðvarandi frá fyrri ríkisstjórn.