157. löggjafarþing — 16. fundur,  14. okt. 2025.

almannatryggingar.

155. mál
[15:08]
Horfa

Ingibjörg Isaksen (F) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir hennar seinna andsvar. Svör heilbrigðisráðherra, í tengslum við Janus, POTS og Ljósið, hafa ekki verið nægilega skýr. Í tengslum við Janus hefur þróunin undanfarna mánuði verið með þeim hætti að foreldrar og aðstandendur hafa haft áhyggjur af hópnum og ég veit líka að sérfræðingar á þessu sviði, eins og geðlæknar og sálfræðingar, hafa haft áhyggjur. Það er þannig. Ég veit að það eru allir að reyna að gera sitt besta, en þarna var verið að skera niður þjónustu sem raunverulega virkaði, það var sýnt og sannað, og bjóða upp á annað úrræði sem er ekki sambærilegt. Það hefur hæstv. ráðherra sagt hér í þingsal, það er ekki verið að bjóða hópnum upp á sambærilegt úrræði og þjónustu og hann hafði áður.

Í tengslum við POTS þá veit ég að það hefur verið stofnaður hópur sem á að fara yfir þetta allt, en á meðan sá hópur er að störfum og hefur ekki lokið sinni vinnu hefur verið skrúfað fyrir þessar niðurgreiðslur á þeim rökum að ekki sé verið að styðjast við gagnreyndar rannsóknir. (Forseti hringir.) En tími minn er búinn. Varðandi umræðu um verðbólgu og launaskrið þá held ég að það sé eitthvað sem við þurfum að taka umræðu um,(Forseti hringir.) jafnvel undir sérstökum umræðum, því að það er eitthvað sem þarf að ræða. Hér er verið að ræða um (Forseti hringir.) hóp í samfélaginu sem þarf að fá kjarabætur, vissulega, en við þurfum að fara rétt að því. Það er mín sýn á málið.

(Forseti (BHar): Forseti áréttar að í seinni umferð er einungis ein mínúta til umræðu fyrir þingmenn í andsvörum.)