157. löggjafarþing — 16. fundur,  14. okt. 2025.

almannatryggingar.

155. mál
[15:10]
Horfa

Jens Garðar Helgason (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Þetta mál er einn angi af mörgum málum hjá hæstv. ríkisstjórn, ríkisstjórn sem er í nýyrðasmíð um tiltektir og sparnað, þó svo að raunin sé allt önnur í ríkisfjármálum. Þetta er ríkisstjórn sem eyðir meira en hún aflar, er að hækka skatta á fyrirtæki og almenning um tugi milljarða til að standa undir auknum verkefnum ríkisstjórnarinnar og gæluverkefnum og kosningaloforðum. Umsagnir hafa birst um þetta frumvarp frá mörgum aðilum þar sem varað er við hver kostnaðurinn af þessu frumvarpi muni verða, þrátt fyrir að í frumvarpinu sjálfu sé sagt að þetta séu 3–4 milljarðar þá eru margir sem telja að kostnaðurinn geti orðið mun hærri. Mig langar að spyrja hv. þm. Ingibjörgu Isaksen hvort henni finnist ekki varhugavert og hvort það þurfi ekki að taka tillit til þeirra athugasemda sem hafa komið og þeirra áhyggja sem hafa komið og að frekari útreikningur eigi sér stað þar sem er kafað dýpra í það hver í rauninni áhrifin eru. Öll viljum við gæta okkar minnstu bræðra og systra en við verðum líka að gæta okkar á því að almannabætur og örorkubætur séu ekki orðnar hærri en lægstu laun á markaði. Við verðum að gæta að því af því að þá er hvatinn orðinn öfugur í kerfinu. Það viljum við heldur ekki.

Mig langar að spyrja hv. þingmann: Verður ekki að skoða kostnaðinn sem af þessu hlýst miðað við þær áhyggjur sem hefur verið lýst í umsögnum? Verður ekki að skoða hann betur og reikna hann betur út?