157. löggjafarþing — 16. fundur,  14. okt. 2025.

almannatryggingar.

155. mál
[15:12]
Horfa

Ingibjörg Isaksen (F) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hv. þm. Jens Garðari Helgasyni fyrir hans andsvar. Ég kom einmitt inn á það í minni ræðu hversu mikilvægt það er að greina heildaráhrifin sem þetta mál mun hafa. Við þekkjum dæmi um það hér fyrr á tímum þegar menntamálaráðherra hækkaði framlag til framhaldsskóla en þá í rauninni hækkaði fjármálaráðherra leiguna fyrir skólana og við enduðum á núlli. Þetta er ekkert ósvipað því sem ég er að benda á, að ef við erum að hækka ellilífeyrinn, sem við viljum auðvitað gera, þá séu aðrir þættir í kerfinu sem koma þá bara til enn meiri skerðingar í staðinn og fólk stendur jafnvel uppi á sama stað. Þess vegna er mikilvægt að fara í greiningu á heildaráhrifunum sem þetta mál hefur því það er alveg rétt að kostnaðurinn gæti orðið mun meiri. Ég vísaði hérna í lög um opinber fjármál áðan þar sem er verið að tala um fyrirsjáanleika og annað. Það er mikilvægt að horfa á þetta. Síðan í tengslum við efnahagsstefnu ríkisstjórnarinnar, eins og hv. þingmaður kom inn á, að hér er verið að hækka skatta á allt og ömmur þeirra, þá er líka verið að boða til hagræðingar án þess að það sé útfært. Við vitum ekki hvað felst í þessum rúmlega 100 milljörðum sem á að hagræða á þessu kjörtímabili. Við höfum ekki hugmynd um það. Við höfum ekkert fengið að sjá á spilin varðandi það þannig að það er líka eitt áhugavert sem þyrfti að skoða og kannski kalla fram frá hæstv. ríkisstjórn.