157. löggjafarþing — 16. fundur,  14. okt. 2025.

almannatryggingar.

155. mál
[15:14]
Horfa

Jens Garðar Helgason (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Það er margt hjá hæstv. ríkisstjórn sem við höfum ekki hugmynd um, hv. þingmenn. Við komumst að því núna á dögunum að þrátt fyrir að það sé ekki á þingmálaskrá þá á að boða hér frumvarp um 7,5 milljarða sem á að taka af eigendum ökutækja, líklega með tugprósenta hækkun á vörugjöldum sem verður líklega mikil búbót fyrir fjölskyldur landsins sem þurfa að fara að endurnýja fjölskyldubílinn, sérstök gjöf frá ríkisstjórn Íslands, tala nú ekki um ferðaþjónustuna.

Mig langar á móti að spyrja hv. þingmann hvort hún hafi veitt því sömu athygli og ég, af því að hér var talað um hina miklu samstöðu í ríkisstjórn Íslands og hjá hv. ríkisstjórnarflokkum, hina miklu samstöðu, hvort hv. þm. Ingibjörg Isaksen hafi tekið eftir því líkt og sá sem hér stendur að í þeim umræðum sem hafa verið um þetta mál — og nú erum við ekki að ræða þetta mál í fyrsta skipti, þetta var rætt á síðasta þingi líka — að það hefur ekki einn þingmaður Viðreisnar komið upp og lýst yfir ánægju sinni með þetta mál, stærsta mál samstarfsflokks þeirra, Flokks fólksins. Það hefur ekki einn þingmaður Viðreisnar komið upp og tjáð skoðun sína og hvað þá lýst yfir stuðningi við þetta mál þrátt fyrir að annað megi heyra hvíslað á göngum víðs vegar.