almannatryggingar.
Frú forseti. Ég vil þakka hv. þm. Ingibjörgu Isaksen fyrir ágætisræðu. En hafandi bakgrunn úr verkalýðshreyfingunni — þar sem iðulega er samið um lágmarkslaun og grunninn að þeim kjörum sem við treystum á að fólk geti dregið fram lífið á — vil ég spyrja hvort ég hafi skilið hv. þingmann rétt, þ.e. að sökum þess að tekjutenging annarra bóta eða annars stuðnings innan kerfisins sé óljós sé ekki verjandi að fara í þessa vegferð að tryggja í það minnsta að frekari kjaragliðnun milli lágmarksbóta og lágmarkslauna verði ekki að veruleika. Til að halda svo áfram varðandi — átti ég ekki eina mínútu, það eru komnar tvær?
(Forseti (BHar): Hv. þingmaður á tvær mínútur í fyrri umferð.)
Síðan varðandi kostnaðarmat á þessum aðgerðum: Hefur hv. þingmaður velt fyrir sér þeim kostnaði sem fylgir langvarandi fátækt, hvaða áhrif það hefur á fólk að vera árum og áratugum saman í fátækragildru innan kerfisins, hvaða félagslegu áhrif það hefur á fólk til lengri tíma, á fjölskyldur og börn?