almannatryggingar.
Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Ragnari Þór Sigurðssyni fyrir andsvarið og það er gott að fá reynslubolta úr verkalýðshreyfingunni hér inn í þingsal og þingsalurinn á líka að endurspegla þversnið af samfélaginu. En þegar hann kemur inn á lágmarkslaun og stuðning og aðrar bætur þá er ég ekki að tala fyrir því að ekki eigi að fara í að hækka kjör eldri borgara, alls ekki. Ég er bara að tala um að þegar við hækkum ellilífeyrisbæturnar og við erum með aðrar bætur sem eru með viðmið við einhverja vissa upphæð þá verða skerðingarnar bara meiri þar og fólk á þá minni rétt á öðrum bótum. Það þarf að horfa á þetta heildrænt, það er það sem ég er að benda á. Það er afar mikilvægt að við horfum á heildaráhrifin af einni hækkun, hvaða áhrif hún hefur á aðra þætti í kerfinu. Sveitarfélögin þurfa þá hugsanlega að hækka framlögin sín og gera þá ráð fyrir því í næstu fjárlögum.
Varðandi kjaragliðnunina þá kom það skýrt fram í umsögnum með málinu síðastliðið vor að hugsanlega mun hægja á kjaragliðnuninni með þessu máli, sem er mjög mikilvægt, en gatið er alltaf til staðar. Það er ekki verið að taka á gatinu sem hefur myndast. Það er það sem er afar mikilvægt líka að ráðast í. En þegar kemur að langvarandi fátækt — og hv. þingmaður spurði mig út í það, varðandi félagslegu áhrifin og mat á því. Sko, hér er verið að horfa á heildina, fjöldann allan, og setja fjármuni í það. Það er gott og vel og ég styð það. Hins vegar er líka mikilvægt að meta og sjá hverjir það eru sem raunverulega búa við fátækt. Það eru ekki allir eldri borgarar, langt frá því, sem betur fer. Það eru um 7.000 einstaklingar. Komum með einhverjar aðgerðir til þessara 7.000 einstaklinga sem eru hnitmiðaðir og hafa miklu meiri og betri áhrif á líf þeirra og kjör en að dreifa þessu á allan fjöldann sem raunverulega þarf kannski ekki á því að halda.