157. löggjafarþing — 16. fundur,  14. okt. 2025.

almannatryggingar.

155. mál
[15:21]
Horfa

Ragnar Þór Ingólfsson (Flf) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Ingibjörgu Isaksen fyrir svarið og vil minna á að ég er Ingólfsson, ekki Sigurðsson. Síðari spurning mín til hv. þingmanns snýr að einmitt þessu; ég ítreka spurningu mína hvort það séu raunverulega verjandi rök að fara ekki í þá vegferð að í það minnsta að tryggja þeim hópum, sem hafa reyndar ekki annan málsvara heldur en Alþingi Íslendinga til kjarabóta, varðandi ákvarðanirnar sem eru teknar frá ári til árs — að tryggja þeim einhvern fyrirsjáanleika og stöðugleika vegna þess að það gæti mögulega haft áhrif á skerðingar í bótakerfinu annars staðar. Mér finnast það heldur rýr rök fyrir því að það sé ekki hægt að koma til móts við þennan hóp.