157. löggjafarþing — 16. fundur,  14. okt. 2025.

almannatryggingar.

155. mál
[15:23]
Horfa

Ingibjörg Isaksen (F) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Ragnari Þór Ingólfssyni kærlega fyrir seinna andsvarið. Ég veit ekki hvort hann var ekki að hlusta á mig eða hvort ég var kannski ekki nægilega skýr. Hér hef ég ekki talað fyrir því að hér ætti ekki að tryggja fólki kjarabót sem raunverulega þarf á því að halda, alls ekki, langt frá því. Hins vegar styð ég það heils hugar og ég styð það að hér sé verið að bæta kjör eldri borgara. Ég er að benda á það að það þarf líka að koma með sértækar aðgerðir til þeirra sem verst standa því að þegar við höfum takmarkaða fjármuni þá þurfum við að forgangsraða þeim. Ef við ætlum einmitt að horfa á þennan hóp sem hv. þingmaður er að tala um og tryggja þeim fyrirsjáanleika og tryggja þeim fjárhagslegt öryggi, þá er betra að gera það með því að horfa á hvaða hóp er raunverulega um að ræða og þarf raunverulega á stuðningi að halda og tryggja honum bætur eða einhvers konar tekjur til næstu mánaða. Einskiptisaðgerð eins og desemberuppbót dugir ekki til slíks.