almannatryggingar.
Virðulegur forseti. Við ræðum hér í dag mál sem snertir í senn kjör tugþúsunda og sjálfan fjárhag ríkisins. En höfum eitt á hreinu: Okkur ber að mæta fólki sem treystir á almannatryggingar af virðingu og réttlæti en okkur ber líka að gæta þess að kerfið sé traust, sjálfbært og sanngjarnt gagnvart þeim sem fjármagna það með störfum sínum og sköttum. Þar liggur kjarninn í afstöðu Sjálfstæðisflokksins. Við stöndum með öryggi fólks en einnig með ábyrgð í ríkisrekstri, stöðugleika og virkum hvötum til þátttöku á vinnumarkaði. Við í Sjálfstæðisflokknum tökum því ekki af léttúð þegar rætt er um lífsafkomu fólks sem treystir á bætur. Við höfum barist fyrir hærri frítekjumörkum, betra samspili kerfa og því að það borgi sig að vinna. Við höfum stutt umbætur á örorkukerfinu sem miða að virkni, endurhæfingu og mannsæmandi kjörum en það er grundvallaratriði að bæta kerfið með heilbrigðum hvötum og innan ramma sem þjóðarbúið ræður við.
Af hverju skiptir þetta máli núna? Frumvarpið breytir eðli ákvörðunar um bætur. Í stað mats á launaþróun og forgangsröðunar við fjárlagagerð verður sjálfvirk tenging við vísitölu sem mælir breiðari þætti en kjarasamningsbundnar hækkanir, þar er m.a. launaskrið vegið og breytingar á vinnutíma sem endurspegla ekki beint framfærsluþörf bótaþega. Samhliða er tryggt að hækkanir verði aldrei minni en verðlag. Þetta er tvítrygging sem getur tvíhækkað útgjöld þegar verðbólga skýtur upp kollinum og laun fylgja á eftir. Við vitum hvert svigrúm hagkerfisins er. Þegar hækkanir fara kerfisbundið umfram það svigrúm verður verðbólguþrýstingurinn meiri, vextir hærri og ráðstöfunartekjur allra rýrna. Það bitnar á heimilum, fyrirtækjum og ríkinu sjálfu. Það bitnar líka á bótaþegum þegar verðbólga grefur undan kaupmætti og það bitnar á ungu fólki sem ber kostnaðinn og fær minna svigrúm til launahækkana.
Það er ekki aðeins Sjálfstæðisflokkurinn sem varar við þessu. Samtök atvinnulífsins hafa bent á að launavísitalan hefur sögulega hækkað hraðar en kostnaðarmat kjarasamninga og að sjálfvirk tenging bóta við slíka þróun auki verðbólgu og útgjöld án þess að taka mið af stöðu ríkisfjármála. Viðskiptaráð varar við að bætur vaxi kerfisbundið hraðar en laun og að það dragi úr hvötum til þátttöku á vinnumarkaði.
Fjármálaráð, sem á að standa utan allrar flokkspólitíkur, bendir á að hér sé sett gólf undir bótahækkanir án sambærilegs gólfs fyrir laun og að slíkt sé varhugavert fyrir verðbólgu og sjálfbærni opinberra fjármála. Meira að segja fjármála- og efnahagsráðuneytið sjálft varar við aukinni sjálfvirkni án fullnægjandi heildarmats á hvötum, launum og verðlagi. Þegar þessir aðilar með ólík hlutverk dragast að varnaðarorðum eigum við hér á Alþingi að hlusta.
Mig langar til að renna yfir álitsgerð fjármálaráðs um tillögu sem það setti fram vegna fjármálaáætlunar fyrir árin 2026–2030 þar sem segir:
„Áform um að þróun örorku- og ellilífeyrisbóta taki mið af launavísitölu og verðtryggingu sem gólfi, er grundvallarbreyting frá núverandi kerfi og getur haft ýmsar afleiðingar í för með sér
Það er grundvallarmunur á tilfærslum og launagreiðslum hins opinbera. Laun eru greidd fyrir veitta þjónustu en tilfærslum er ætlað að tryggja framfærslu. Með yfirlýstum áformum er bótaþegum gert hærra undir höfði en launþegum. Þá er ekki með skýrum hætti fjallað um það hvaða áhrif þessi áform, komi þau til framkvæmda, geti haft á hvata fólks á vinnumarkaði. Yfirleitt hefur launavísitala hækkað meira en almennt verðlag. Þegar sú hefur ekki verið raunin hefur verið um að ræða eðlilega leiðréttingu til að koma á jafnvægi í hagkerfinu. Gangi þessi áform eftir mun slík byrði verða borin af launafólki eingöngu. Þá virðist ekki litið til þess að á undanförnum árum hafa greiðslur til þeirra bótaþega sem verst eru staddir hækkað töluvert umfram almennar launahækkanir.
Örorku- og ellilífeyrisbætur eru undanskildar raunvexti útgjalda í stöðugleikareglu. Stöðugleikaregla setur því vexti nafnlauna litlar skorður, ekki fremur en greiðslum almannatrygginga, og þau geta hækkað verulega án þess að farið sé á svig við regluna. Áform þessi geta haft mikil áhrif á sjálfbærni opinberra fjármála til framtíðar og því er mikilvægt að fyrir liggi ítarleg greining á þessum áhrifum.“
Þá hef ég lokið að lesa álitsgerð fjármálaráðs um þetta mál. En kjarni málsins er tvíþættur. Efnislega er rangt að láta bætur sem eiga að tryggja lágmarksframfærslu fylgja óhefluðum mælikvarða á heildarlaun. Laun endurspegla verðmætasköpun, framleiðni, aldurstengd þrep og styttingu vinnuviku, sem á ekki heima í sjálfvirku framfærsluviðmiði. Stjórnsýslulega á Alþingi að ráða forgangsröðun í ríkisfjármálum ár frá ári. Þegar verulegur hluti útgjalda er festur í sjálfstýringu án sveigjanleika til að bregðast við hagsveiflum erum við að veikja fjárlagaeftirlit þingsins og getu ríkisins til að verja verðstöðugleika.
Þegar við horfum út fyrir landsteinana er skýr rauður þráður. Í Noregi er lífeyrir í greiðslu uppfærður með lægri tölu en launaþróun til að verja sjálfbærni og jafnvægi milli kynslóða. Í Svíþjóð gilda tekjuvísitölur með varanlegum frádrætti og jafnvel sjálfvirku jafnvægiskerfi sem getur dregið úr hækkunum eða snúið þeim tímabundið við. Í Finnlandi er blönduð vísitölutenging sem vegur saman verðlag og laun. Í Danmörku eru rammar og ráðstöfunarpottur sem ráðherrann forgangsraðar. Sameiginlegt er að setja varnagla, ekki tvítryggingu sem ýtir útgjöldum upp í hvaða árferði sem er.
Afstaða Sjálfstæðisflokksins er skýr. Frumvarpið er óvarfærið í núverandi mynd. Það eykur sjálfvirkni án nauðsynlegra varnagla, grefur undan verðstöðugleika, dregur úr hvötum til vinnu og veikir forgangsröðun Alþingis.
Ég verð að gera athugasemd við orð ráðherra áðan þar sem ráðherra nefndi að hér væri verið að lyfta lægstu launum. Það er alveg skýrt að hér erum við ekki að tala um laun heldur bætur. Hugmyndafræðilega er almannatryggingum ætlað að tryggja lágmarksframfærslu en með því að binda bætur við launavísitölu er verið að færa kerfið í átt til þess að bætur haldi í við meðallaun í samfélaginu, ekki bara verðlag. Sumir vilja meina að þarna sé farið út fyrir grundvallarhlutverk almannatrygginga og ég vil vara við því, að við séum að skekkja það kerfi sem við höfum búið við í langan tíma.
Sumir munu spyrja hvort Sjálfstæðisflokkurinn gangi gegn fólki á bótum. Svarið er að sjálfsögðu nei. Við viljum vernda kaupmátt og virðingu í framfærslu en við viljum líka vernda verðmætasköpun og forsendur þess að samfélagið standi undir réttlátri velferð til framtíðar. Það er ekki samúð að samþykkja ósjálfbæran útgjaldavöxt sem kyndir undir verðbólgu og hækkun vaxta. Það er ekki samstaða að setja stóran hluta fjárlaga á sjálfstýringu og halda að það hafi engar efnislegar afleiðingar. Það er ekki réttlæti að bætur hækki hraðar en laun og ef það væri þannig værum við að fara gegn grundvallarhlutverki almannatrygginga.
Ég vil vara við því að með þessu getur sú staða komið upp að bætur almannatrygginga verði hærri heldur en lægstu laun á vinnumarkaði. Þá er hvatinn til vinnu farinn og þá erum við farin að ganga gegn þeirri reglugerð sem við samþykktum og tók gildi 1. september hjá sama ráðherra þar sem við vorum að gera breytingar á örorkukerfinu til að hvetja til virkni, að í kerfinu sé hvati til þess að fólk sé virkt á vinnumarkaði þannig að það mætti segja að þetta frumvarp vinnur gegn hinu.
Saga almannatrygginga er saga umbóta. Við höfum hækkað grunnfjárhæðir, lagfært skerðingar og styrkt frítekjumörk. Það getum við gert áfram með ábyrgri stefnu, skýrri forgangsröðun og mælanlegum markmiðum, ekki með blindri vísitölutengingu. Við eigum að sýna þeim sem treysta á bætur að við stöndum með þeim en líka þeim sem vinna og greiða skatta. Við eigum að velja leið sem dregur úr verðbólgu, býr til svigrúm fyrir lægri vexti, styður fjárfestingu og bætir lífskjör til lengri tíma. Heilbrigð velferð þarf heilbrigðan grunn. Sjálfstæðisflokkurinn mun standa vörð um hvort tveggja.