157. löggjafarþing — 16. fundur,  14. okt. 2025.

almannatryggingar.

155. mál
[15:47]
Horfa

Ragnar Þór Ingólfsson (Flf) (andsvar):

Frú forseti. Ég vil þakka hv. þm. Guðrúnu Hafsteinsdóttur fyrir sína ræðu. Ég velti fyrir mér í ljósi þeirra ummæla sem komu frá hv. þingmanni varðandi áhyggjur um að bætur hækki hraðar en laun, hvort hún eigi við almennar launahækkanir eða lágmarkslaun. Sömuleiðis varar hv. þingmaður við því að bætur verði hærri en laun. Mér leikur hugur á að vita á hvaða tímapunkti hv. þingmaður telur að slíkt geti gerst, að bætur með þessum lögum verði orðnar hærri heldur en laun. Þá er ég að vísa til lágmarkslauna, sérstaklega í ljósi þess að almennt séð á almennum vinnumarkaði — og það ætti hv. þingmaður að þekkja vel þar sem við erum eiginlega með svipaðan bakgrunn, hún frá Samtökum atvinnulífsins og ég úr verkalýðshreyfingunni — að samkvæmt launatöflu SGS, ef við tökum síðustu tíu ár, þá voru laun samkvæmt launatöflu 17 rétt tæplega 280.000 kr. en eru í dag tæpar 490.000 kr. samkvæmt launaflokki 17. Ef við berum það saman við launavísitölu síðastliðin tíu ár þá eru launavísitöluhækkanir nánast á pari við hækkanir á launaflokki 17 hjá Starfsgreinasambandinu. Þannig að samkvæmt þessum tölum, ef við tökum tíu ár, þá er þessi munur nær enginn á launavísitölu þar sem launaskriðið hefur í rauninni parast út varðandi það að lægstu launin hafa að jafnaði hækkað meira heldur en almennar launahækkanir. Þannig að mín spurning er sú: Á hvaða tímapunkti telur hv. þingmaður að bætur fari fram úr launum?