almannatryggingar.
Ég þakka hv. þingmanni fyrir spurningu sem til mín er beint. Reyndin er sú að frá aldamótum hafa bætur almannatrygginga hækkað tvöfalt meira en verðlag og 18% umfram laun. Það sem ég varaði við í ræðu minni hvað varðar ókosti þess að tengja bætur við launavísitölu er að það muni hugsanlega og líklega draga úr hvata til atvinnuþátttöku þar sem bótaþegum verða tryggðar að jafnaði meiri hækkanir en kjarasamningar kveða á um. Þetta á hv. þingmaður að þekkja rétt eins og ég. Þetta getur leitt af sér tvöföldun á hækkun bóta ef við fáum verðbólguskot, eins og t.d. hefur oft gerst í íslensku samfélagi þar sem vísitala neysluverðs hækkar verulega og launavísitalan mun fylgja í kjölfarið. Þetta gerðist t.d. eftir efnahagshrunið og þá erum við komin hér með skekkju á milli fólks á vinnumarkaði og bótaþega.