almannatryggingar.
Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Guðrúnu Hafsteinsdóttur fyrir svarið. Enn og aftur vil ég ítreka spurningu mína varðandi það að bætur hækki meira en laun. Tilgangur og markmið frumvarpsins er auðvitað að stöðva þá kjaragliðnun sem hefur átt sér stað á milli bóta og lágmarkslauna. Ef hv. þingmaður á við hækkun lágmarkslauna þá stenst það auðvitað enga skoðun að bætur hækki meira en lágmarkslaun. Í sögulegu samhengi, eins og ég kom inn á áðan, ef við tökum launatöflur Starfsgreinasambandsins, launatöflu 17, og berum saman við launavísitölu síðustu tíu árin, þá liggur alveg fyrir að sá samanburður er nánast upp á punkt og prik, þ.e. laun í launaflokki 17 hafa hækkað nánast á pari við þróun launavísitölu.
Varðandi áhyggjur hv. þingmanns um að vísitala fari fram úr; vissulega er það rétt að það geta komið upp aðstæður þar sem verðbólga verður meiri og vísitala neysluverðs hækkar meira heldur en launavísitala, eins og gerðist hér eftir hrun, og sömuleiðis hafa líka verið örlítil frávik þar um á allra síðustu árum í hárri verðbólgu, þar sem verðbólgan hefur verið meiri en launahækkanir, þó að litlu muni. Ég vek athygli þingmanns á því að þegar komið hafa efnahagsáföll, eins og gerðist í efnahagshruninu, þá eru gerðar ráðstafanir og m.a. voru bætur frystar og t.d. voru atvinnuleysisbætur lengdar árið 2012, minnir mig, um heilt ár. (Forseti hringir.) Það er viðbragð við gildandi reglum og lögum. Þess vegna vildi ég spyrja: Eru þessar áhyggjur ekki óþarfar varðandi hækkanir á lágmarkslaunum (Forseti hringir.) miðað við Starfsgreinasambandið?