157. löggjafarþing — 16. fundur,  14. okt. 2025.

almannatryggingar.

155. mál
[15:58]
Horfa

Guðrún Hafsteinsdóttir (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir spurninguna. Ég held að hv. þingmaður hafi ekki hlustað á ræðu mína áðan en ég las hér upp úr álitsgerð fjármálaráðs vegna þessa máls þar sem segir orðrétt: „Með yfirlýstum áformum er bótaþegum gert hærra undir höfði en launþegum.“ Þetta eru ekki mín orð. Þetta eru orð fjármálaráðs og þar er einnig í þessari sömu álitsgerð sagt: „Það er grundvallarmunur á tilfærslum og launagreiðslum hins opinbera. Laun eru greidd fyrir veitta þjónustu en tilfærslum er ætlað að tryggja framfærslu.“ Áfram segir: „Þá er ekki með skýrum hætti fjallað um það hvaða áhrif þessi áform, komi þau til framkvæmda, geti haft á hvata fólks á vinnumarkaði.“ Þetta eru ekki mín orð. Þetta eru orð fjármálaráðs sem er ópólitískt ráð hér til ráðgjafar þannig að ég ætla að fá að svara þessari spurningu hv. þingmanns sem til mín er beint með því að vísa lóðbeint hér í álit fjármálaráðs. Ég vil einnig taka það fram að með þessu frumvarpi er í raun verið að rjúfa grundvallarmun á milli bóta og launa. Áhrifin geta verið alvarleg, minni hvati til atvinnuþátttöku, skekktar forsendur fyrir kjarasamninga og auknar skuldbindingar ríkissjóðs til framtíðar. Undir þessar áhyggjur sem ég nefni hér hafa fjármálaráð, fjármálaráðuneytið, Samtök atvinnulífsins og fleiri tekið.