157. löggjafarþing — 16. fundur,  14. okt. 2025.

almannatryggingar.

155. mál
[16:02]
Horfa

Guðrún Hafsteinsdóttir (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir spurningu til mín. Hv. þingmaður nefnir hér að það séu fjársterkir aðilar sem halda uppi gagnrýni á þetta frumvarp. Ég var hér í fyrra svari mínu að lesa álitsgerð fjármálaráðs. Það er ekki fjársterkir aðilar. Fjármálaráð er ópólitískt ráð, ráðgefandi við Alþingi okkar Íslendinga og það er heldur ekki fjársterkir aðilar. Þannig að ég vísa þessum orðum til föðurhúsanna. (ÁLÞ: Ég taldi nú nokkra fleiri upp.)

Hv. þingmaður talar um að það þurfi ekki að lækka bætur. Sjálfstæðisflokkurinn hefur aldrei talað um að lækka bætur. Hv. þingmaður nefndi það áðan að bótaþegar væri ekki of sælir af kjörum sínum. Ég nefndi einnig í ræðu minni að það er mikið keppikefli okkar Sjálfstæðismanna að standa vörð um velferð í þessu landi en hv. þingmaður þekkir það jafn vel og ég sem hér stend að við getum ekki veitt neina velferð ef hér er ekki verðmætasköpun og ríkisreksturinn ekki í jafnvægi. Hér er verið að leggja til ósjálfbæran vöxt, eitthvað sem ekki er hægt að hafa neina stjórn á, ekki hægt að taka mið af inn í ríkisreksturinn og ég vara við því.

Ég vil líka aftur ítreka það sem mér finnst vera misskilningur hjá Flokki fólksins og formaður Flokks fólksins nefndi hér áðan, hæstv. ráðherra, að hér væri verið að lyfta lægstu launum. Bætur almannatrygginga eru ekki laun, þær eru framfærsla. Það er grundvallarmunur þar á og ég hef áhyggjur af því að hér sé verið að höggva (Forseti hringir.) í kerfi almannatrygginga með óafturkræfum afleiðingum (Forseti hringir.) sem geta orðið alvarlegar.