157. löggjafarþing — 16. fundur,  14. okt. 2025.

almannatryggingar.

155. mál
[16:05]
Horfa

Sigurþóra Steinunn Bergsdóttir (Sf):

Virðulegur forseti. Ég kem hér í dag til þess að sýna stuðning minn við þetta frumvarp sem núna er í 1. umræðu. Frumvarpið er mjög einfalt. Það er bara ein setning sem segir í raun og veru að við séum að tengja almannatryggingar við þróun launavísitölu en ekki eftir launaþróun. Þetta er í raun og veru bara mjög einfalt frumvarp sem snýst um réttlæti. Það er vitað að gjá á milli bóta og lægstu launa hefur dýpkað mjög mikið á undanförnum árum og það er ekki verið að tala einu sinni um leiðréttingu í þessu frumvarpi. Það er bara verið að tala um það að þessi gjá hætti að stækka, að hún haldist hreinlega og dýpki ekki frekar. Þetta er réttlætismál. Þetta er sérstaklega réttlætismál fyrir konur því konur eru miklu stærri hópur þeirra sem fá bætur frá almannatryggingum og þess vegna skiptir máli að við höldum því á lofti að með þessu erum við auðvitað að líta til hagsmuna kvenna í auknum mæli.

Mér finnst líka leiðinlegt þegar ég heyri hv. þingmenn sem hér hafa talað í dag tala eins og það sé verið að etja hópum saman, að með því að við séum að stoppa þessa gjá, minnka þetta bil sem er á milli, þá séum við með einhverjum hætti að refsa láglaunahópum. Ég held að það sé bara mjög villandi og slæm umræða sem bara kemur málinu í raun og veru ekki nokkurn skapaðan hlut við.

Ég hlakka til að eiga samtal um þetta mál inni í nefnd. Það á eftir að koma, það á eftir að vera lagt fyrir, það á eftir að fá sína meðferð í nefndinni. Vonandi fáum við góðar umsagnir og góða umræðu í nefndinni um þetta og að velferðarnefnd komi með þetta mál í 2. umræðu von bráðar þannig að við séum búin að sjá betur hversu gott mál þetta er í raun og veru því að það snýst fyrst og fremst um réttlæti.